Góðann daginn,
Jæja, eins og fyrirsögnin segir til um, þá erum við bara alveg að verða búnir að frysta í kútinn, við eigum bara nokkra kassa eftir að setja niður og ekki laust við að landspenningurinn sé farinn að láta á sér kræla, alla vega hjá mér, enda er ég að fara í fríið. Við fengum síðast “dry” makríl í pokann en vonandi náum við að fá bara slatta af síld í næsta holi, þá verða allir sáttir:) Annars vona ég að við verðum í landi einhvern tímann á morgun, en ég hef það ekki staðfest frá Capitansky Robertsky, en það er svona mín tilfinning. Við erum að toga núna um 30 SML norðaustur af fonti þannig að stímið í land er stutt, við erum á síðasta holinu okkar þannig að hér er allt í sómanum.
Kíkjum á nokkrar myndir.
Swíng swíng and a blííííng, sagði Haukur…þessi drengur er vinnslustjóri, og er alltaf í góðu skapi, hérna er hann að raða í hausarann, að sjálfsögðu brosandi:)
Maggi Mix raðar Makríl í tæki NR-10.
Ég á ekki fleiri myndir í bili en við skulum snúa okkur að “Hinni hliðini” sá sem er fyrir svörum núna er enginn annar en aldursforsetinn, golfarinn og Bátsmaðurinn Heiddi.
Hvað heitirðu?: Heiðar Jóhannsson
Staða um borð?: Bátsmaður
Hvenær ertu fæddur?: 14. Desember 1948
Hvernig bifreið áttu?: Mercedes Benz ML-350 árg 2003
Hjúskaparstaða?: Giftur
Hver er þinn uppáhalds matur?: Allur villtur fugl
Á hvaða skipum hefurðu verið?: Sólbak,svalbak,Jóni Eiríkssyni, Jóni Kjartanssyni, Snæfellinu, Júlíusi Geirmundssyni, Kaldbak, Þorsteini, Guðmundi.
Hvað ertu búinn að vera lengi á sjó?:Að mestu leyti síðan 1964.
Hvað gerurðu helst í fríunum?:Golf Golf og Golf, og skíði á veturna
Hvernig tónlist hlustar þú á?:Allt nema Hip-hop og Rapp
Hver eru áhugamál þín?: Golf, skotveiðar og bílar
Hvað er eftir minnilegasta atvikið á sjó?:Þegar Júpiter eyðilagði ljósalampann í þorsteini
Hvert er lífsmóttóið: Njóta lífsins og vera glaður
Með hverjum heldurðu í ensku?:Manchester united
Með hverjum heldurðu í Íslensku?:Þór Akureyri, Breiðablik Akureyri.
Ég þakka Heidda stórvini mínum fyrir að nenna að sitja undir þessum spurningum, en Himmi er að klára að elda þannig að það er best að fara að setjast á garðann.
þangað til næst, lifið heil, og við erum alveg að koma heim.
bless bless:)
Höfundur: eddigr















Nýjustu ummælin