feb. 28
Guðmundur fór út um kl. 23 í gær og voru þeir komnir á miðin um hádegið. Heyrði aðeins í Sturlu í kvöld og sagði hann að dagurinn hefði verið rýr. En það kemur annar dagur og vonandi betri, þýðir ekkert að gefast upp.
Ég var að vona að ég finndi bloggara um borð en ég hitti ekki þann sem ég hafði í huga áður en ég fór svo það verður að bíða betri tíma.

Höfundur: Vefstjóri
feb. 26
Jæja, við erum komnir á landleið og er áætlað að vera í Eyjum kl. 7:30. Þessi túr fór ágætlega af stað en heldur dró nú úr fiskiríi þegar á leið og veðrið var nú ekki til að hjálpa. En hvað um það, við erum með um 650 m3 og svo er bara að sjá hvað vigtar.
Ég var nú búinn að setja inn nokkrar færslur hérna á bloggið í túrnum en svo var ég að fikta í þessu og fokkaði einhverju upp. Það endaði með að ég varð að setja þetta allt upp aftur en svona er þetta bara. Helvítis fokking fokk!!
Ég er nú að fara í frí en ég ætla að reyna virkja einhvern til að blogga á meðan, helst vopnaðan myndavél.


Höfundur: Vefstjóri
Nýjustu ummælin