mars 31
Hæ veriði.
Kolmunnaveiðar hafa nú stöðvast af óviðráðanlegum orsökum. Ekki vegna þess að við viljum það endilega heldur aðallega vegna þess að hann vill bara ekki láta veiða sig eða eitthvað. Samt er nú kvóti á þessu þannig að kolmunninn ætti nú að vera farinn að þekkja ferlið. Það er því með öllu óskiljanlegt að vera að láta eltast svona við sig. Það er ekki eins og við gefumst upp og förum heim. Nú eins og svo oft áður var myndavél munduð, og hér gefur að líta það helst markverðast.

Hér er Stjáni að laga til í nálakörfunni, búinn að þræða tvöfalt 6mm trévíra og er að mér sýnist með undirbirði fyrir framan sig.
Þeir hreinlega rífast um að fá að vera í nálakörfunni strákarnir,og standa þarna í bættningum á frívöktunum og í þrjúpásunni.

Þessi mynd er sviðsett og kemur bloggsíðunni ekkert við. Viðkomandi var glaðvakandi þegar myndin var tekin en er svo ótrúlega góður leikari.
Vil ég spyrja glöggva lesendur hvort þeir þekkja manninn á myndinni og hvort þeir hafa séð viðkomandi í þessari stellingu áður. Besta svarið fær Freyju-Draum í verðlaun.

Hér er mynd af matráðsmanni nokkrum sem annar ónefndur heldur að heiti Vilgarður.En, nei þetta er Virgar besti vinur Davíðs sem er nýgenginn í(á) krossinn.
Svona nærmynd ætti að sýna að minnsta kosti eitt hár í nefi en ekki hjá þessum snyrtipinna. Hann er hvað þekktastur fyrir snyrtilegan klæðnað og óvenjulegt en fágað málfar.

Þetta er hann Benni.Hann heimtaði að fá þessa mynd birta af sér. Ég reyndi að draga úr honum en hann er nú einu sinni yfir þannig að ..........
Jæja, það er ekki víst ég verði vinsæll eftir þessar plammeringar. En ég er ekki að keppa í vinsældum……Ég er að reyna að þóknast vefstjóra!
kveð að sinni

Höfundur: Haffi
mars 30
“Því verr gefast heimskra manna ráð eftir því sem fleiri eru saman komnir”
Róbert Hafliðason jaðrar við að vera séní á svo mörgum sviðum. Og hann Haffi jaðrar við að vera séní í svo mörgu. Þess vegna er merkilegur andskoti að þegar Haffi og Róbert leggja saman í púkkið og plotta feitt, kemur yfirleitt eitthvað reglulega slæmt út úr því. Ég er ekkert að segja að þeir séu asnar samankomnir, en ég á fullt af asnalegum myndum af þeim sem ég mun birta ef ástæða verður til. Ég veit líka allan djöfulinn um þá, sem ég á skrifað, á svona minnismiðum, um spesíalt fyrirgreiðslur í bönkum og svona, sem ég mun birta síðar. Allaveganna ef ég verð rekinn. Ég man ekki vel hvort ég skrifaði undir einhvern þagnareið þegar ég var ráðinn, en meðan ég er ekki alveg viss þá eru varir mínar innsiglaðar. Ekki orð meir í bili.
Úps…vinnslan er komin í gang og verksmiðjan snýst eins og vel smurð saumavél…svona Singer meina ég.

Höfundur: Jonni
mars 30
Jæja, þá má segja að það sé búið að starta þessum túr. Við köstuðum í morgun og hífðum eftir hádegið um 100 m³ sem gera ca. 90 tonn þannig að vinnslan er komin í gang. Núna erum við á norðurleið en þar hafa einhverjir séð kolmunna, vonandi í miklu magni svo það er bara bjart yfir köllunum.
Enn bólar ekkert á færslum frá hinum nýja starfsmanni síðunnar og líst mér satt að segja ekkert á þetta því Haffi (ritstjóri) er steinhættur að blogga líka svo netverjar verða að láta þessi skrif vefstjóra sér duga. Ég vil skora á lesendur síðunnar að commenta og reyna að peppa Haffa og Jonna upp, held að þá vanti bara smá hvatningu og knús
Góðar stundir.

Höfundur: Vefstjóri
mars 29
Sæl á ný.
Það er alltaf verið að bíða eftir að eitthvað gerist til að hægt sé að skrifa um það en því miður þá er bara ekkert að gerast á miðunum og eru öll skipin að leita sem stendur. Tímann nýta menn til hinna ýmsu hluta, sumir horfa á kassann, aðrir eru á netinu og svo eru einhverjir að hnýta flugur svo menn eru nú ekki alveg aðgerðalausir.
Meðal þeirra verka sem dundað er við eru tölvuviðgerðir og reyndu undirritaður og Jonni til að mynda að gera við fartölvuna hans Jonna en til gamans má geta þess að “fartölvan” hans er engin smá smíði og jaðrar við að vera tveggja mann tak með 21″ skjá og þung eftir því.

Róbert og Jonni í tölvuviðgerðum

Vilberg á stímvaktinni

Siglt undir regnbogann

Hérna er svo mynd frá því við komum inn til Eyja og sýnir síldartorfu á Klettsvíkinni
Kveðjum að sinni, góðar stundir.

Höfundur: Vefstjóri
Nýjustu ummælin