Website counter
apríl 27

Jæja.
Við hjónakornin vorum að skríða inn heima hjá okkur fyrir klukkutíma.
Eftir 8 tíma ferðalag frá Selfossi.
Með viðkomu í Hveragerði og svo á Sauðárkrók.
Eftir ógleymanlega árshátíðarhelgi er gott að vera kominn heim. En…. við erum samt yfir okkur ánægð
og þakklát núna,bæði tvö.
Þeim sem skipulögðu frábæra árshátíð, ber sérstakur heiður og þeim sem komu fram á hátíðinni klöppum við sérstakt lof í lófa.
Ég er líka hreykinn og stoltur, sem aldrei fyrr, að tilheyra þessari einstöku áhöfn.
Og hún frú Hjördís, sem er aldrei mjög grobbin kona, trúði mér fyrir því,á heimleiðinni,
 að ég skyldi gjöra svo vel og blessa alla góða vætti,alla tíð,fyrir lánið mitt, að fá að tilheyra svona góðum hóp karla og kvenna.
Hún væri stolt af því sjálf!

Elsku kallarnir mínir og allir indælu makarnir:

Takk fyrir frábæra helgi!

Höfundur: Jonni

apríl 23

Sælt veri fólkið.

Þá er helgin góða að bresta á og er ég þá ekki að tala um kosningahelgina heldur árshátíðarhelgina. Dagskráin er nú svo sem ekkert þétt en það sem mestu máli skiptir er jú að mæta í góðu skapi og vera bara ákveðin í því að skemmta sér. Ég veit að þetta kemur seint en betra er seint en aldrei!

Planið er annars að mæta á morgun á Hótel Selfoss, herbergin verða klár kl. 14 en misjafnt er hvenær mannskapurinn mætir og því er engin dagskrá skipulögð á morgun. Á laugardaginn er planið að skoða Ölvisholt brugghús en þeir framleiða meðal annars bjórinn Skjálfta sem hefur fengið góðar viðtökur. Brottför í þessa ferð er um kl. 15:30 og ættum við að vera komin upp á hótel aftur um kl. 18. Við vildum fara fyrr um daginn að skoða en það er víst traffík hjá þeim svo þetta verður bara svona.

Um kvöldið er svo matur sem ég reyndar veit ekki hvenær byrjar en myndi tippa á kl. 20. Við verðum í sér sal og getum því látið gammin geysa og svo er ball á eftir. Ekki hef ég mikla fregnir af matseðlinum en hef þó hlerað að það sé kengúra í forrétt og lambakjöt í aðalrétt.

Af bátnum er svo sem lítið að frétta nema það seinkar alltaf slippnum og er hann enn við bryggju. Við erum þó búnir að rífa tvo klefa sem við ætlum að hafa líkamsræktarsalinn í og erum búnir að finna tæki í hann. Málningarvinnan er ekki komin af stað ofan dekks en verið er að mála á millidekkinu.

Læt þetta duga í bili. Sjáumst hress um helgina.

Höfundur: Vefstjóri

apríl 16

Jæja, þá erum við lagðir af stað til Reykjavíkur en meiningin er að fara í slipp þar eftir helgi. Við verðum í borg óttans um kl. 06 í fyrramálið og er von á mönnum á morgun til að vaska bátinn hátt og lágt svo málningin tolli nú á honum. Stærstu verkefnin í slippnum verða auk málningarvinnu að skipta um RSW-kælinn, upptekt á báðum ljósavélum, öxuldráttur, niðursetning á nýjum sónar og svo er hellingur af smærri verkefnum sem allt of langt væri að telja upp.

Læt þetta duga í bili en minni á árshátíðina um aðra helgi, dagskrá er í mótun og verður birt von bráðar.

Höfundur: Vefstjóri

apríl 10

Eins og ég sagði í gær er mikil og hörð keppni hér um borð í skeggsöfnun, eru þar margir til kallaðir en fáir útvaldir eins og gefur að skilja því sumum vex jú ekki grön og bara ekkert við því að gera. En hér koma myndir af keppendum.

Sverrir R

Sverrir R

Haffi

Haffi

Haukurinn

Haukurinn

Rabbi

Rabbi

Fannar

Fannar

Flottir finnst ykkur ekki?

Flottir finnst ykkur ekki?

Síðan er bara að kjósa! Þið getið gert það hér

Annars er allt í gúddí hér, verið að þrífa lestar og klárast það vonandi í kvöld.

Höfundur: Vefstjóri