Website counter
maí 31

Þá er nú farið að styttast í þessu og allt að verða klárt hér um borð, vinnslan klár og verið að leggja loka höndina á veiðarfærin.  Strekktum togvírana inn á Eskifirði í gærkveldi og lögðum svo í hann upp úr eitt í nótt.  Verðum á miðunum um fimm í dag.  31052009 Vírarnir strekktir, gerist varla þægilegra í blíðunni á Eskifirði.31052009005 Hjölli og Raggi tilbúnir í slaginn.31052009006 Heiddi að græja poka fyrir nemana, fær alveg 10 fyrir þetta.

Höfundur: Fridrik

maí 30

Jæja þá er komið að því, komum til Eyja í gærmorgun eftir um 6 vikna slipp, vorum við að græja skipið fram á kvöld, þannig að nú er bara siglt í átt að silfrinu með smá viðkomu á Eskifirði, þar sem við ætlum að setja í land eitt stykki troll til yfirferðar.  Verðum svo líklegast á miðunum seinnipartinn á sunnudaginn.  Það var nú ekki svo einfalt að koma nýju tækjunum í gymmið á sinn stað, þar sem gangar og hurðir skipa eru ekki alveg hannaðir fyrir svona hluti, en með mikilli seiglu og útsjónarsemi hafðist þetta allt stórslysalaust.270520091 Aðeins verið að létta á græjunni27052009007 Tækin komin inn og nú er bara að taka á því.

Höfundur: Fridrik

maí 28

Jæja, þá er báturinn loksins kominn úr slipp og fór hann á flot á þriðjudagskvöld. Meiningin var að fara til Eyja strax í nótt en það hafðist ekki en vonandi kemst hann á morgun. Læt fylgja með mynd af skipinu nýmáluðu og fínu en myndin er tekin á símann minn svo gæðin eru kannski ekki merkileg.

Glæsilegur með nýju línurnar sínar!!

Glæsilegur með nýju línurnar sínar!!

Höfundur: Vefstjóri

maí 22

Jæja, þá er búið að smíða þreksalinn en það vantar ennþá tækin, þau verða sett niður þegar báturinn fer úr slipp. Við erum bara nokkuð sáttir við útkomuna en það voru teknir í þetta tveir klefar og veitti ekkert af því.

Af skipinu er það að frétta að þetta er allt að smella saman og er planið að hann fari niður á seinna flóðinu á mánudaginn og ef allt gengur upp verðum við farnir að flaka síld um aðra helgi.

Það er komið myndaalbúm með myndum úr gyminu og svo eru hérna fyrir og eftir myndir að neðan.

Fyrir

Fyrir

Eftir

Eftir

Höfundur: Vefstjóri