júní 30
Við erum komnir í land í Eyjum og erum að landa í bræðslu sem stendur. Erum með um 1250 tonn í bræðslu og 450 tonn af frystum afurðum, mestmegnis makríl. Reiknum með að klára bræðslulöndun í nótt og svo er frystilöndun kl. 6 í fyrramálið. Brottför er svo áætluð annað kvöld.

Höfundur: Vefstjóri
júní 28
Góðann og blessaðann daginn. Heldur hefur nú hlaupið á snærið víðfræga hjá okkur á Guðmundi og má segja að það sé búið að vera blóðbað á bleyðunni. Við hífðum í gærkvöldi 500 tonn og svo 300 tonn um hádegið. Er nú svo komið að að við erum komnir í vandræði með lestarpláss og verðum því að vera slakir eitthvað á næstunni.
Það er búið að frysta um 20 þúsund kassa og er 80% af því makríll en við frystum hann eingöngu núna og setjum þessar fáu síldartonn í bræðslu. Við erum komnir með ca. 1.000 tonn í bræðslu og 80-90% af því er makríll líka. Reiknum með að vera í landi einhverntímann á þriðjudag en það skýrist nú á morgun vonandi og einnig hvar við komum til með að landa.

Höfundur: Vefstjóri
júní 26
Sælinú! Sá í kommenti við síðustu færslu að viss aðili heimtaði fréttir, hélt reyndar að sá aðili ætti að vera upptekinn við annað en að hanga á netinu og leika sér í golfi
En hvað um það.
Af okkur er bara allt fínt að frétta. Vinnslan rúllar og hefur ekki stoppað en þó hefur fiskiríið ekki verið sem best. Það sem reddar þessu er að uppistaða aflans núna er makríll og þarf því minna magn í fabrikkuna. Við erum komnir með ca. 10 þúsund kassa svo þetta mallar bara ágætlega en sem fyrr er makríllinn frekar smár.
Jæja, læt þetta duga í bili. Góðar stundir.

Höfundur: Vefstjóri
júní 24
Ekki fór þetta nú af stað með neinum látum en af stað samt
Við erum búnir að taka eitt hol og það var nú bara smá dúsa í þessu en nóg til að koma þessu í gang . Þetta var að mestu leyti makríll en vinnslan byrjaði nú ekki gæfulega því slógsugan fyrir makrílinn bilaði en Bjössi yfirvélstjóri og hans menn redduðu því snarlega. Makríllin hefur verið heldur smár fyrir okkar smekk núna í byrjun vertíðar en menn þykjast sjá núna merki þess að þessi stóri fari að láta sjá sig.
Kynjahlutfallið um borð hefur tekið breytingum frá síðustu veiðiferð, frá því að vera 100% kallpeningur niður í 89,5%. Þetta skýrist af því að tvær stúlkur eru um borð núna sem báðar hafa reyndar verið hér áður. Aníta er háseti en Ragnheiður er hér á vegum Matís að rannsaka makrílinn svo við erum 21 um borð að þessu sinni.
Ég setti inn nýjar myndir í albúmið og svo langar mig að minna á gestabókina því það er talsverð umferð á síðuna sé ég en engin spor

Aníta að setja gullið í tækin

Haukur sprækur eftir fríið og massaglaður með makrílinn

Víðir víðförli lagði land undir fót og skreið upp á Klifið og tók þessa mynd

Höfundur: Vefstjóri
Nýjustu ummælin