júlí 29
Sælt sé fólkið. Það er löndun að gerast, hægt gengur með frostið en bræðslulöndunin gekk vonum framar. Annars er varla rassgat að frétta. Jú, það prumpaði hundur fyrir utan sjoppuna í dag og gengur sú kjaftasaga um bæinn að hann hafi komist í afganga frá Guðmundi. Kokkurinn sver það af sér og segir að hann hendi aldrei neinu, okkji einu sinnum kasúldnim búllur. Eyrin hefur fengið að njóta nærveru okkar í misjöfnu mæli. Þessi staður er sem vin í eyðimörkinni og virðist bara virka sem segull á suma. Ég hafði planað að heimsækja Þórð bónda á Ytri-Brekku í þessari inniveru en það verður að bíða þangað til næst, Benni er náttúrulega búinn að þræla okkur undirvélstjórunum svoleiðis út að það stórsér á okkur. Við höfum nú ákveðið að kaupa sófa sem fæst á Ebay, það fylgir honum þessi fíni vinnugalli. Hér er mynd af sófanum.

með kv

Höfundur: Haffi
júlí 28
Sælt veri fólkið. Þá er það ákveðið…við leggjum af stað til Þórshafnar í dag og verðum búnir að binda klukkan 1750. Bræðslulöndun hefst stundvíslega kl 1800 og eru löndunarkallar vinsamlegast beðnir um að vera komnir í startholurnar ekki seinna en klukkustund fyrir áætlaðan komutíma. Þá vil ég að gefnu tilefni biðja Aðalbjörgu að vera tilbúna með raspaðar kótilettur og rauðkál, gott ef hún reimaði á sig hlaupaskóna svo hún haldi í við matargesti sem stinga af frá pöntunum. Svo vil ég endilega mynna frystilöndunargengið á að gleyma ekki að muna eftir að kaupa lýsi og slurka í sig einum eða jafnvel tveim gúlsopum. Það á semsagt að slá met í þetta skiftið, það mætti segja að tímatökurnar voru fyrir ca viku en nú er komið að keppninni sjálfri. en að öðru.. Hjölli Friðriks fékk að kenna á eigin meðulum. Þannig er nefnilega mál með vexti að hann hafði grenjað út frí yfir þjóðhátíðina og ætlaði greinilega að ekki að missa af neinu. Ónefndur skipstjóri hringdi í hádeginu í gær og sagði að nú þyrfti Þröstur í land og Hjölli um borð, eitthvað hefði komið uppá og svona væri þetta nú. Þetta var leiðrétt 8 klukkustundum seinna og kvaldist Hjörleifur mikið þessar stundir. Auðbjörg sagði okkur í trúnaði að kallinn hefði legið í eldhúsgólfinu eins og frekur krakki og öskrað:helvítis fokking fokk!! mörgum sinnum. en að öðru…. Myndagátan í seinasta pistli fékk litlar undirtektir, einn svaraði. Hann svaraði vitlaust! en hann reyndi og það er það sem gildir. Svarið er: Hann er að spila GTA í playsteisjón. en að öðru…. mynd dagsins er af turni nokkrum í Toronto, hann ku vera rúmir 500 metra hár og var eða er hæðsta bygging í heimi.(skiftir ekki máli)

Þetta er nú ekkert smáræði..
með kv

Höfundur: Haffi
júlí 26
Sælt veri fólkið. Þá er komið að fiskifréttum. Það hefur gengið líka svona glimmrandi vel, bæði veiðar og vinnsla. Við erum að verða komnir upp að lúgu í fremmri lestinni og þá fer nú að draga til tíðinda. Að öllu óbreyttu ættum við að vera í landi mjög fljótlega eftir helgi. Af okkur strákunum er líka allt gott að frétta, allir við góða heilsu enda væri annað skrítið. Kokkurinn um borð sér til þess að við erum tilbúnir fyrir hvað sem er, allar pestir hrökkva af okkur eftir nokkrar máltíðir. Svo er gymmið orðið vinsælt hjá mörgum og hver veit nema einhverjir taki þátt í hjólreiðakeppni þegar frá líða stundir.

Náunginn á bílnum er EKKI hluti af hjólreiðakeppninni,hann stundar aðra íþrótt. Hvaða??
Já, spurning dagsins er: hvað íþrótt stundar ökumaður bílsins. Takið þátt í spennandi leik og þið getið unnið til veglegra verðlauna. Fyrsti vinningur er 5000 kr innborgun á glænýjan Bens CD 500.
kv

Höfundur: Haffi
júlí 24
Sælt veri fólkið. Það fór nú ekki svo að við yrðum síldarlausir í marga daga. Þó að túrinn hafi farið skrikkjótt af stað þá horfir nú til betri vegar. Já, við erum komnir á skrið og nú skal ekki stoppað fyrr en frystilestar eru orðnar fullar. Við færðum okkur aðeins um set í dag og létum trolið fara eftir 3 kaffi, hífðum svo eftir plokkarann og fengum í einar þrjár lestar ( og hálfa betur). Vinnslan ætti því að hafa hráefni fram að hádegi. Ekki ætla ég að þessu sinni að sýna ykkur myndir af síldarflökum, enda er nóg af svoleiðis myndum í albúminu. Nú bregður svo við að sumir hafa fengið vinnugalla, sérmerkta og ég veit ekki hvað og hvað. Aðrir eru bara í sínum gömlu göllum, gatslitnum og illa merktum. Árni Jónsson nefnist einn þeirra sem fékk þennan líka fína galla. Eitthvað hefur pöntunin farið öfugt í þann sem saumaði því efnið sem fór í þennan galla hefði alveg dugað í þrjá galla á Árna. En drengurinn er þrjóskur sem andsk og vildi endilega máta. Hann sagði að hann passaði alveg mátulega. Læt ég nú ykkur um að dæma.

Þarna er Sturla búinn að bretta skálmarnar upp að hnjám Ei-Jei's.

Sko......smellpassar!!!
Ég vona svo sannarlega að myndirnar sem hafa verið í undanförnum pistlum fari ekki fyrir brjóstið á lesendum, en ég minni á að hægt er að gera athugasemdir og endilega gerið það.
ok.takk í bili
kv

Höfundur: Haffi
Nýjustu ummælin