Website counter
ág. 29

Jó! Gleymdi nú bara að blogga í gær en við vorum sem sagt í landi á Þórshöfn eins og náttúrulega allir vita og ef einhver nákominn áhöfninni vissi ekki af því þá er nú eitthvað að en förum ekki nánar út í það.

Við erum komnir á hafið aftur og búnir að taka eina sköfu hérna í Bakkaflóanum með félögum okkar á Álseynni en fyrir þá sem ekki vita er það flóinn sem er suður af Langanesi. Þeir sem ekki vita hvar Langanes er eru aftur á móti engu nær en ég bendi þeim á Wikipedia til að finna út úr því. Við uppskárum 160-70 tonn af eðalsíld sem við erum núna að heilfrysta og ætlum að leita suður eftir og freista þess að fá meiri makríl.

Annars er allt í góðu hérna og Manchester United eru bestir :D

Höfundur: Vefstjóri

ág. 26

Sælt veri fólkið. Þetta fór ágætlega af stað hjá okkur Þorsteini en nú hefur síldin eitthvað snúið á okkur og erum við nú að leita. Erum þó ennþá með í vinnsluna en það klárast í fyrramálið. Planið var að landa á Þórshöfn á föstudaginn en það er spurning hvernig það fer ef við fáum ekki meiri fisk.

Nú er kominn sá árstími að síldin fer að yfirgefa lögsöguna okkar og færir sig yfir til Noregs þar sem kvikindið kallast “norsk vårgytende sild” og hamborgari með frönskum og kók kostar 2500 kall. Er því allt eins líklegt að við förum að axla okkar skinn og halda til Noregs en þar eyddum við 2 1/2 mánuði síðasta haust og kom það bara vel út. En vonandi verður nú hægt að gera annan túr hérna heima því heima er best, ekki satt?

Höfundur: Vefstjóri

ág. 25

Þetta gengur bara ekki lengur. Ekki vill hann Friðrik tak við þessu svo ég verð bara að halda áfram þó mér finnist það nú ekki viðeigandi en ég veit að það fylgjast margir í landi með okkur í gegnum þessa síðu svo einhver verður að skrifa. En hvað um það!

Við erum nú sem stendur á útleið eftir smá stopp á Norðfirði en þangað fórum við vegna brælu og vegna tæknilegra örðugleika sem viðgerðarmaður að sunnan kom til að líta á. Við tókum nokkur hol með Álsey en hún fór svo með sinn skammt í vinnslu og erum við nú að fara hitta hinn makkerinn okkar sem er Þorsteinn. Við verðum á miðunum um hádegisbilið og vonandi komnir í bullandi vinnslu fljótlega eftir það. Okkur vantar svona góða tvo sólahringa til að fylla frystinn þannig að það er bara vonandi að það verði fiskirí.

Höfundur: Vefstjóri

ág. 21

Ég vil biðja lesendur síðunnar afsökunar á þessari bloggpásu sem við tókum okkur alveg óumbeðnir og reynum að láta þetta ekki koma fyrir aftur.

Við fórum út aðfararnótt miðvikudags og fengum á okkur brælu sem slotaði ekki fyrr en í gærmorgun og þá átti eftir að finna síldina. Fannst að lokum blettur undir kvöld og erum við búnir að hafa eitt hol með félögum okkar á Þorsteini. Já, við erum farnir að partrolla því okkur hefur gengið bölvanlega upp á síðkastið að fanga kvikindið einir og væntum við mikils af samstarfinu við Þorstein.

Læt þetta duga í bili og vil senda bloggkeflið á hann Friðrik. Auglýsi ennfremur eftir áhugasömum bloggara úr áhöfn skipsins, æskilegt að viðkomandi hafi gott vald á íslenskri tungu og hafi aðgang að myndavél :) Áhugasamir hafi samband í síma 120.

Höfundur: Vefstjóri