sept. 28
Sæl veriði.
Í ljósi breyttra þjóðfélagsaðstæðna höfum vér nú tekið þá sameiginlegu ákvörðun að yfirgefa Íslandsmið. Þar var eigi neitt að hafa öllu lengur og hafa okkur tæmst allar lestar fyrir nokkru síðan. Nú skal haldið í víking. Er smugan þá nærtækust og í þessum orðum sögðum erum vér nú að fara að dífa trolli voru í hafið í von um að silfur hafsins fylli bráðar lestar vorar.
Á vaktaskiftum, og reyndar á öðrum tímum líka, er spjallað. Menn eru misorðlangir og finnast að því lengri sem sagan er því merkilegri hlýtur hún að vera. En það var afsannað í gær..endanlega. Ekki ætla ég að endursegja söguna hans Bjössa en hún var hálftíma löng. Til að gera langa sögu stutta þá endaði hún:og þeir kostuðu 530 kall stykkið. Þegar myndin að neðan var tekin, var sagan rétt hálfnuð og Árni byrjaður að skera af sér eyrun.

- Hér er Bjössi að reyna að finna mynd í símanum sínum af ryðfríum múrbolta. Þolinmæðin skín úr augum hlustandans.
Þar til næst..lifið heil

Höfundur: Haffi
sept. 27
Sæl veriði.
Það hefur svo sem ekki mikið á daga okkar drifið síðan við fórum frá Þórshöfn rétt fyrir miðnætti á fimmtudaginn. Jújú, við höfum tekið eitt eða tvö höl og fengið sæmileg sýnishorn…allavegana nóg til að halda uppi atvinnu í frystingunni, það er nú bara gott. Álsey og Þorsteinn hafa lokið þátttöku í tvílembing að sinni, sendum við þeim bestu þakkir fyrir samflotið. Þá að máli málanna..myndirnar. Myndirnar að þessu sinni eru úr ranni Edda Grétars, hann hefur gott skinbragð á hvenær á að smella og hvenær á ekki að smella.

Skoðið vel munnlag drengjanna.
Næsta mynd hefur birst áður og alls ekki fyrir svo löngu, en ef við berum saman þessar tvær myndir þá gæti fólk lagt saman tvo og tvo.

Bjössi keypti þennan síma og það er hægt að fara á netið og nota hann sem GPS og allt mögulegt. Nema að hringja úr honum.

Eddi er svalur sem hvalur
ok..gott í bili

Höfundur: Haffi
sept. 24
Sælt veri fólkið.
Við vorum í landi á Þórshöfn kl 2200 á þriðjudagskvöldi og var byrjað að landa strax kl 0700 á miðvikudagsmorgni. Löndunin gengur ágætlega og verður að öllum líkindum lokið um kvöldmat. Framhaldið er ekki ákveðið, hvort reynt verður við síldina hér á Íslandsmiðum eða haldið til Noregs. Það kemur bara í ljós, við höfum nú ekki áhyggjur af því. Til að rifja upp hvernig Noregur lítur út koma hér nokkrar myndir sem teknar voru í fyrra.

- Svona lítur nú millilandaflugvélin út.
Já, það var oft og í minningunni alltaf snjór og ógeðslega kalt í Noregi. Ef einhver man eftir gömlu skíðasleðunum þá eru þeir í fullu gildi ennþá í þessu landi. Fólk fer í búðina á sleðunum og læsir þeim fyrir utan búðina. Við tékkuðum á verðinu á slíkum farkosti og var það litlar 60-70.000 krónur(íslenskar). Ég er hræddur um að ef einhver léti sjá sig á svona sleða fyrir utan Smáralind yrði sá sami settur á geðdeild.

- Svona lítur skíðasleði út fyrir þá sem aldrei hafa séð slíkan farkost.
En það er fallegt í Noregi.


- Ef grannt er skoðað sést að Haukur fór í ferna skó, en til hvers….??

Þá verður þátturinn ekki lengri að sinni.
bið að heilsa

Höfundur: Haffi
sept. 22
Sælt veri fólkið.
Já, þá er farið að sjá fyrir endann á túrnum. Við erum komnir í var einhverstaðar ekki svo fjarri Þórshöfn, og höldum áfram að frysta fram á kvöld, svona cirkabát. Þá ætti frystilestin að verða orðin full og búið að þrífa allt hátt og lágt. Löndun ætti að öllum líkindum að byrja á miðvikudagsmorgun. Eitthvað verður um mannaskifti og er þá helst að nefna að Árni kemur um borð og lækkar þar af leiðandi meðalgreindarvísitalan talsvert (óritskoðað).
Myndum hafði ég lofað af köllunum sem standa við rattið og að sjálfsögðu stend ég við það.
Í tilefni þess að túrinn er að renna sitt skeið þá tók Frikki fram díóðuljósaseríuna og hengdi hana í skegg sér og ætlar ekki að taka hana niður fyrr en eftir þrettándann.

- Friðrik hefur safnað skeggi síðan snemma í morgun.
Sturla skipstjóri lét nýverið innrétta brúnna algjörlega upp á nýtt og fékk alla helstu matreiðslumeistara landsins til verksins. Eitthvað fór nú úr böndunum og er alveg eins og hann sitji í setustofu eða borðsal á myndinni hér fyrir neðan.

- Ágætis torfa á asdikinu, ef ráða á í svip Sturlu.
Ólafur Helgi Árnason hefur verið á skipinu svo lengi sem elstu menn muna og þekkir hann orðið hvern krók og kima um borð. Nú á dögunum var keypt um borð svokölluð Pc-tölva og er ekki annað að sjá en Óli sé í sjöunda himni yfir henni.

- “það mætti kannski setja í hana harðari disk” sagði Ólafur.

Höfundur: Haffi
Nýjustu ummælin