Jæja, þá eru hjólin farin að snúast á ný. Við fengum í alla vinnslutankana í gær og höfum við bara verið á lóninu á meðan vinnslan rúllar á fullu. Veðurspáin fyrir svæðið er góð þannig að allar forsendur ættu þá að vera fyrir því að verðmætin hrúgist niður í lest næstu daga vegna þess að veiðin er góð, enda ber fjöldi skipanna á slóðinni þess merki.
Um borð er að venju mórallinn á háu stigi og Himmi kominn með salkjöt og baunir, hamborgara með bernes, einhverja úrvals fiskrétti og annað góðgæti á mastseðilinn næstu daga. Ég setti upp nýja hátalara fyrir Himma við eldhúsgræjurnar, sem við fengum í Sortland en hefðu mátt vera öflugri að mínu mati. Hann er hins vegar alsæll með þá og dansar nánast út í eitt í eldhúsinu.
Látum nú myndirnar tala sínu máli.
Ef einhver er að velkjast í vafa um hvort við Róbert vitum ekki hvar HÁTÍSKUHILLURNAR í Rúmfatalagernum eru. Þá ætti þeirri óvissu að vera eytt hér með þessari mynd, að undangenginni myndinni sem birtist af okkur um daginn þegar við skörtuðum þeim rauðu. Reyndar er ég nokkuð viss um að HÁTÍSKU buxurnar sem við báðir klæðumstum eru úr hillunni við hliðin á skirtuhillunni.

Við Róbert vitum sko vel hvar hátískuhillurnar í Rúmfatalagernum eru.
Það er grundvallar atriði til að ná þessum góðu afköstum sem eru á vinnslunni hjá okkur að VMK-vélarnar virki vel og það sjá VMK-mennirnir okkar um. Við erum svo heppnir að um borð í honum Guðmundi GÓÐA höfum við VMK-landsliðið.

Það þarf að bograst víða til að allt rúlli rétt.
Kristján heitir höfðinginn hér að neðan en hann er ekki Ólafsson. Stjáni okkar ku hins vegar vera snillingur á flugustönginni og einnig er hann mikill golfáhugamaður. Myndin ber hins vegar með sér að honum er ýmislegt til lista lagt.

Þarna er Stjáni á úrkastbandinu og passar upp á að aðeins hágæða síldarflök fari áfram inn í tækjasal.
Strákarnir á næstu mynd eru þeir Fannar sem situr undir Aron. Fannar verður líklega að teljast líkamsræktarstjórinn um borð. Hann pumpar og pumpar og er að verða algjörlega hrikalegur. Hann skokkar líka upp á hæðstu tinda og að baki hjá honum eru Kilmanjaro hæðstur í Afríku, Mont Blanck hæðstur í Frakklandi og vestur Evrópu og Hvannadalshnúkur. Aron er hans lærisveinn í ræktinni og stefnir líka hátt, enda sonur Grá Víðisins okkar og því vel ættaður.

Fannar og Aron, lestajaxlarnir þessa stundina, í starholunum að fara niður í lest
Sverrir sem var í pökkuninni þessa stundina er eins og Stjáni, snillingur á flugustöng og hann er líka mikill golfáhugamaður. Og eins og Stjáni er hann hann þeim kostum gæddur að vera ýmislegt til lista lagt. Þeir eru ekki bræður.

Þegar allt rúllar vel í pökkununni þá hafa stákarnir það, til þess að gera, rólegt eins og Sverrir á þessarri mynd en svo getur alltaf komið einhver hnökur og þá er honum kippt í laginn á örskotstundu eða kallaður til vélstjóri ef hnökurinn er yfir meðallagi.
Þá er komið að Hauks þætti Grettissonar, vinar míns með meiru. Hann er útvarpsmaður og plötusnúður í hjávekum og eins og reyndar öllum hér um borð, ýmislegt til lista lagt.

Haukur vinnslustjóri annarrar vaktarinnar heldur hér á tveimur síldarflökum sem hann segir að séu falleg. Haukur veit hvað hann syngur í þessum efnum, þannig að það má treysta á að gæðin séu góð.
Vaktaskipti hafa farið fram á næstu mynd og Axel kominn á úrkastbandið. Axel stefnir á bóndastörf enda alinn upp á Gunnarsstöðum sem er stórbýli nærri Þórshöfn. Axel er bróðursonur Steingríms J. þannig að Steingímur er kallaður Steingrímur frændi hér um borð. Áhöfnin leggur líka til drjúgann skerf til handa Steingrími frænda til að stoppa upp í fjárlagahallann.

Puttinn er upp hjá Axeli sem þýðir að VMK-vélarnar eru í góðu lagi og lítið um úrkast.
Svo er það einu sinni þannig að allt er breytingum háð.

Þetta er ekki Haffi. En ef Haffi væri með skegg þá er ég viss um að hann liti einhvern vegin svona út.
Ef hægt er að ná svona mynd af Árna og Jonna eins og sést hér að neðan þá eru VMK-vélarnar að ganga á 130% afköstum og vinnslan öll almennt á 100%.

Svei mér ef Árni og Jonni eru ekki frábærir náungar og fitta því vel inn í áhöfnina.
Jæja elskurnar mínar, áhöfn, konur, börn og frí-áhafnarmenn. Þetta verður ekki lengra í þetta sinn.
Hilse fra Norske havet.

Nýjustu ummælin