Website counter
nóv. 28

Sællt veri fólkið

Þá erum við enn á ný á leið til Noregs. Löndunin gékk vel og var lagt í hann um kl.02:00 aðfaranótt föstudags. Mannaskipti voru mikil og kemur því stór hluti áhafnarinnar ferskur úr fríi, tilbúinn í slaginn fram til jóla. Hinir sem fóru í fríið fara náttúrulega að setja upp jólaseríur og baka smákökur.

Það er voðalega rólegt á svona stímum en tíminn er þó nýttur í ýmislegt og var til dæmis haldin brunaæfing og farið yfir öryggismálin á fundi á eftir.

Fundur um öryggismálin í setustofunni

Fundur um öryggismálin í setustofunni

Annað sjónarhorn af fundinum

Annað sjónarhorn af fundinum

Og enn eitt sjónarhornið

Og enn eitt sjónarhornið

Það voru náttúrulega fleiri á fundinum enda mætti öll áhöfnin svona í einhverjum hollum og ber þar fyrstan að nefna Frikka stýrimann sem stjórnaði æfingunni af mikilli röggsemi. Eru hann og aðrir ónefndir beðnir afsökunar á myndleysinu af þeim. Það verður bætt úr því í næstu færslum.

Þegar svona rólegt er þá smitar það niður í vélarúm þó að við séum þó aðeins að snudda eitthvað. 

Kristó á vaktinni

Kristó á vaktinni

Og þarna er Árni kominn á vaktina

Og þarna er Árni kominn á vaktina

Þegar svona rólegt er, þá nenna nú VMK-mennirnir ekki að opna augun þó þeir séu vakandi.

Enda til hvers að vera með opin augun, vélarnar í fínu standi og til í slaginn

Enda til hvers að vera með opin augun, vélarnar í fínu standi og til í slaginn

Þó rólegt sé yfir lífinu um borð þá eru skyldur kokksins alltaf þær sömu og álagið jafnvel meira, verandi meira eða minna með mannskapinn í borðsalnum. Himmi er þó eitthvað búinn að fá aðstoð við eldamennskuna.

Það er næstum hægt að sjá pitssuna sem Himmi var með í kvöldmatinn handa okkur og er þarna núbúinn að hesthúsa sjálfur.

Það er næstum hægt að sjá pitssuna sem Himmi var með í kvöldmatinn handa okkur og er þarna núbúinn að hesthúsa sjálfur.

Enn sem betur fer sér fyrir endan á þessum rólegheitum. Strákarnir fara í trollvinnu í fyrramálið og svo verðum við væntanlega komir á veiðislóðir einhvetíma upp úr hádegi á morgun.

Þessi færsla verður ekki lengri en þetta.

Ástarkveðjur af hafinu.

Höfundur: B Gudjohnsen

nóv. 26

Sælt veri fólkið.

Þessa stundina erum við að landa frystu afurðunum. Það gengur bara ágætlega og gera menn ráð fyrir að löndun verði lokið um 0200 svona cirka bát. Þá ættu allir þeir sem voru í frí að vera komnir en þeir lögðu af stað frá Akureyri um sjöleitið í kvöld. Þetta verður stutt færsla í þetta sinnið en eina mynd varð ég að setja inn. Þar ber að líta tvo vaska sveina og þeir taka hlutina ekki neinum vettlingatökum.

 Vilberg hefur greinilega verið kalt á hægri hendinni.

Vilberg hefur greinilega verið kalt á hægri hendinni.

Svo mörg voru þau orð

bið kærlega að heilsa

Höfundur: Haffi

nóv. 24

Sælt veri fólkið.

Nú eins og segir í laginu þá erum við á leiðinni, en það segir EKKI í laginu að við erum á leiðinni til Þórshafnar. Við erum allir trallandi kátir, og þá sérstaklega þeir sem eru að fara í frí, þ.e.a.s. meiriparturinn af áhöfninni. Við verðum þarna einhverntímann seinnipartinn á miðvikudaginn og byrjum á að landa í bræðslu. Frystilöndun hefst svo stundvíslega klukkan 0600 á fimmtudagsmorgun.

Varðandi ferðaáætlun skipverja er það mér sannur heiður að tilkynna nýjan fídus á heimasíðunni og er undir flipanum “Ferðaplan” . Þetta ætti að létta á símkerfinu hér um borð. Svo líka ef menn hringja um borð og spyrja um ferðaplanið og um leið og þeir leggja á þá eru þeir búnir að gleyma hvernig það var. Þá er upplagt að kíkja á heimasíðuna og losna við skömmina að hringja aftur og aftur til að spyrja um ferðaplanið.

Nú að öðru..við tókum nýlega í notkun svokallaðann tanklefa sem við keyptum notaðan af sölu varnarliðseigna. Honum var komið upp við hliðina á gymminu,þannig að menn ættu ekki bara að koma helmassaðir heim heldur í þokkabót tanaðir í rusl. Mér  auðnaðist sú lukka að fá að prófa fyrstur umræddann tanklefa og verð að segja alveg eins og er að ég varð fyrir pínulitlum vonbrigðum. Menn voru að vonum spenntir að sjá árangurinn og Róbert tók þessa mynd af mér rétt korteri eftir prufuna.

Ég hefði kannski betur sleppt því að vera í vettlingum.

Hefði kannski betur sleppt því að vera í vettlingum.

Fyrst við erum byrjaðir að birta myndir sem áttu aldrei að birtast á síðunni. Jonni ætlaði að taka að sér myndatökur en við sáum fljólega að það var ekki að ganga upp.

 Myndatökumaðurinn verður nefnilega að vera svona ca í sömu hæð og myndefnið..

Sá sem heldur á myndavélinni verður nefnilega að vera svona ca í sömu hæð og myndefnið..

Og þessi er ekki betri..

 Sko...allt upp í loft..

Sko...allt upp í loft..

Ein mynd að lokum..soldið nastí en skemmtileghmm

ok..bæbæ í bili

Höfundur: Haffi

nóv. 22

Sælt veri fólkið.

Já, nú er farið að styttast verulega í heimstímið, ef að allt gengur að óskum leggjum við af stað í kringum miðnætti í kvöld. Að sjálfsögðu þurfum við að byrja á því að keyra í einhvern punkt. Þar hitta þeir okkur norsku vinir okkar og skoða hvað við erum með og svona. Svo tökum við stefnuna á Þórshöfn en þar stendur til að landa bæði í bræðslu og frystu afurðunum.

Sólrún skrifaði okkur um að Sverrir væri kominn heim og sagðist ætla að hlúa vel að kallinum, stjana svoleiðis við hann, færa kaffi í rúmið og setja undir lappirnar ef honum finnst eitthvað vanta upp á það. Svo ætlar hún að láta renna í bað og passa að vatnið sé ekki of heitt og þvísíður of kalt. Það verður semsagt engin breyting á heimkomunni hjá Sverri í þetta skiftið!!

Ég lofaði myndum af hinni vaktinni  og stend við það. Haukur Grettis tók af mér ómakið í sambandi við tökur mynda og fær hann bestu þakkir fyrir. En eina mynd á ég, sem mér var stranglega bannað að setja á síðuna. Því miður get ég ekki orðið við þeim óskum…samviska mín segir mér bara að setja hana inn.

??Hver er maðurinn í ljótu skyrtunni??

??Hver er maðurinn í ljótu skyrtunni??

Biggi er fyrrverandi fótboltakappi en hefur nú tekið upp annað áhugamál. Nýja áhugamálið stundar hann að mestu í einrúmi. Eina sem til þarf er auður veggur og luxorlampi.

Hér er Biggi að sýna elsta trixið í bókinni " kanína með löng eyru"

Hér er Biggi að sýna elsta trixið í bókinni " kanína með löng eyru"

Stundum þegar menn eru að flýta sér of mikið þá gera menn mistök. Heiddi er engin undantekning frá þeirri reglu.

Hér hafa orðið mistök, Heiddi hefur sett í tæki sem hann átti ekki að setja í. Að sjálfsögði þarf hann þá að tína allt upp úr tækinu og setja upp í rennuna aftur og keyra allt saman í flökunarkarið.

Hér hafa orðið mistök, Heiddi hefur sett í tæki sem hann átti ekki að setja í. Að sjálfsögðu þarf hann þá að tína allt upp úr tækinu og setja upp í rennuna og keyra allt saman í flökunarkarið....nei djók.

 Hér hefur Rabbi komið sér vel fyrir í stúkusæti á Bláu Millunnni.

Hér hefur Rabbi komið sér vel fyrir í stúkusæti á Bláu Myllunnni.

Axel er stórbóndi og þúsundþjalasmiður. Heyrnartækin sem hann er með smeið hann sjálfur úr gömlum Massi Ferguson traktor, hrífu og hrærivél sem átti að fara að henda. Segist hann ná öllum stöðvum á tækið nema Skjá einum.

"Á ég að breyta þessarri myndavél í brauðrist fyrir þig"

"Á ég að breyta þessarri myndavél í brauðrist fyrir þig"

Að lokum er mynd af  Skotanum okkar, sem allir elska. Hann er þvílýkur ljúflingur og heill hafsjór af fróðleik þó hann líti ekki út fyrir það. Hann upplýsti t.d. afhverju bakborði og stjórnborði heita bakborði og stjórnborði. Vitið þið það?

His mother can be proud of her son.

His mother can be proud of her son.

Svo mörg voru þau orð

bið að heilsa í bili

Höfundur: Haffi