Website counter
des. 11

Nú er aldeilis farið að styttast í síminu. Þegar ég spurði Sturlu um miðnætti hvenær áætlaður lendingartími við bryggu í Eyjum væri, svaraði hann 16:37. Já, Karlinn var nákvæmur núna og engar vöflur á honum. Það var hálfger bræla á okkur á miðvikudaginn en Guðmundur Góði gékk vel þrátt fyrir það og í gær var ljómandi veður og SÓL.

Blessuð sólin elskar allt,

allt með kossi vekur.

Haginn grænn og hjarnið kalt,

hennar ástum tekur. 

 

Það er eðli málsins samkvæmt ekki mikið um græna haga á þessum árstíma en sólin hefur sannarlega góð áhrif á okkur um borð. Hvort það var blessuð sólin sem við höfum ekki séð svo lengi, blíðan eða það að við erum að nálgast heimahagana og ástvini eða bara þetta allt saman í einum fínum pakka, þá var létt yfir mannskapnum í þrifunum. Þessi jólahreingerning er líka langt komin enda hefur verið góður tími til hennar á þessu langa stími.

Það var notarlegt að sjá sólina aftur.

Það var notarlegt að sjá sólina aftur.

Á myndinni að neðan má sjá þá Himma og Heimi. Ég ætlaði að taka eina mynd af Heimi og skrifa aðeins um puttann sem hann skóf inn að beini um daginn, en hefur samt staðið sína plikt. Þá kom Himma limm og vildi fá að vera með. Það var náttúrulega alveg sjálfsagt enda kokkurinn á hverju skipi miðpunkturinn í móralnum og Himmi klikkar ekki þar. Svo er hann líka svo hrikalega myndalegur maðurinn, en greinilega smá athyglissjúkur. Kannast þú við það Svava?

Ég ætlaði að taka eina mynd af Heimi og skrifa aðeins um puttann sem hann skóf inn að beini um daginn en hefur samt staðið sína plikt. þá kom Himma limm og vildi fá að vera með. Það var náttúrulega alveg sjálfsagt end kokkurinn á hverju skipi miðpunturinn í móralnum og Himmi klikkar ekki þar.

Himmi og Heimir, tveir fjallmyndalegir sjóarar á leið í land.

Þrifinn í vinnslusalnum eru búin og eins og sést á myndinn er Gústi vinnslustjóri hæst ánægður með árangurinn.

Gúst gerir miklar kröfur um hreinlæti sem og allir okkar vinnsustjórar. Hinnir tveir eru Haukarnir okkar þ.e. Haukur Sím (Tröllið) og Haukur Grettis sem er í fríi núna.

Gústi gerir miklar kröfur um hreinlæti sem og allir okkar vinnsustjórar. Hinir tveir eru Haukarnir okkar þ.e. Haukur Sím (Tröllið) og Haukur Grettis sem er í fríi núna. Um borð er alltaf annar eða báðir Haukarnir, þegar Gústi fær frí, þannig að hér eigum við alltaf Hauk í horni og það verður að teljast gott.

Þegar þrifin eru búin niðri og meira að segja búið að þrífa vinnslutankana eins og hægt er úti á sjó, þá færist axjónið upp á dekk.

Í áhöfninni höfum við líka tvo Sverrira eins og Hauka. Þeir eru báðir miklir jaxlar enda þurfa þeir að vera það. Sverrir Safta sem er á myndinni tekur ekki að sér lítið hlutverk sem Íslands eina von og Sverrir Rúnars sem hristi það af sér þegar himnarnir hrundu á hann, en hann er í fríi núna. En að öllu gamni sleptu þá var það mikil mildi að ekki fór verr þegar hann fékk brot úr kinninni á niðuleggjaranu í höfuði þannig að hjálmurinn brotnaði, í síðasta túr.

Í áhöfninni höfum við líka tvo Sverrira eins og Hauka. Þeir eru báðir miklir jaxlar enda verða þeir að vera það. Sverrir Safta sem er á myndinni tekur ekki að sér lítið hlutverk sem Íslands eina von og Sverrir Rúnars sem hristi það af sér þegar himnarnir hrundu á hann, en hann er í fríi núna. En að öllu gamni slepptu, þá var það mikil mildi að ekki fór verr í síðasta túr, þegar hann fékk brot úr kinninni á niðuleggjaranum í höfuðið, þannig að hjálmurinn brotnaði.

Gunni í góðum gír að þrífa Bb.togspilið. Eins og sést á myndinni er hann brosmildur. Gunni brosir alltaf nema þegar hann brosir ekki, sem er mjög sjaldan.

Gunni í góðum gír að þrífa Bb.togspilið. Eins og sést á myndinni er hann brosmildur. Gunni brosir alltaf nema þegar hann brosir ekki, sem er mjög sjaldan.

 Við í vélinni erum náttúrulega á fullu í þrifum á okkar svæðum líka.

Það verður allt að sem hreinast um jólin og Kristó er þarna að sjá til þess að gólfin í vélarúminu verði til fyrirmyndar.

Það verður allt að vera sem hreinast um jólin og Kristó er þarna að sjá til þess að gólfin í vélarúminu verði til fyrirmyndar.

Eins og ég lofaði í síðustu færslu þá fá lesendur að sjá áragurinn sem orðinn er í málningavinnunni í Bb.síðu vélarúmsinns. Þar hefur orðið gríðaleg breiting á til batnaðar, þó enn sé töluverð vinna eftir þar til fullklárað er.

Þarna er komin ein umferð á en þegar farið er að kíkja á bakvið koma í ljós helgir dagar sem á eftir að ráðast á.

Þarna er komin ein umferð á, en þegar farið er að kíkja á bakvið koma í ljós helgir dagar sem á eftir að ráðast á.

Það er allt annað að sjá þetta, en þarna á það sama við um helga daga.

Það er allt annað að sjá þetta, en þarna á það sama við um helga daga.

Eitt var það sem ekki var hægt að festa á myndina sem kemur næst, en það var hreinlætisilmurinn sem lá í loftinu. Í brúnni er allt orðið skínandi hreint og fínt, enda er Karlinn annálaður snyrtipinni sem og hinir tveir sem í brúnni standa á Guðmundi hinum Góða. Þeir Frikki, sem bugðið hefur fyrir í færslunum í þessum túr, og Róbert sem er í fríi. Róbert getur samt varla talist vera í fríi akkúrat núna því hann skellti sér til Danmerkur til að skoða troll í tilraunatanki.

Allt orðið hreint og fínt í brúnni en þá er alltaf hægt að finna sér eitthvað að gera sem betur má fara.

Allt orðið hreint og fínt í brúnni en þá er alltaf hægt að finna sér eitthvað að gera sem betur má fara.

Svo kláruðust þrifin úti á dekki og þá færðist fjörið inn, í átt að íbúðunum sem teknar verða í nótt og í fyrramálið.

Stjáni er vandvirkur í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur.

Stjáni er vandvirkur í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur.

Biggi mundar háþrýstþvottabyssuna fyrir myndasmiðinn, svona til að sýna hvernig á að fara að þessu.

Biggi mundar háþrýstþvottabyssuna fyrir myndasmiðinn, svona til að sýna hvernig á að fara að þessu.

Á morgun (ég er alltaf að þessu bloggi á nóttunni) á svo eftir að kasta trollunum til að hreinsa þau.

Þegar búið verður að binda í Vestmanneyjum kl.16:37 :) , þá mun grútnum verða landað og strákarnir fara í að klára að hreinsa tankana. Það er svo hátt til lofts í þeim að sú vinna verður ekki gerð nema við bryggju. Strákarnir eru þá í gúmmíbát að háþrýstiþvo loftin í tönkunum og smúla svo niður jafnóðum og við vélsjórarnir dælum undan þeim sjónum út. Allir ættu svo að komast til síns heima á laugardaginn og fara að undirbúa jólin ásamt konum og börnum.

Þangað til, ástarkveðja af GUÐMUNDI GÓÐA.

Höfundur: B Gudjohnsen

des. 09

Sælt veri fólkið

Já við erum á heimleið sem þýðir að landað verður í Vestmannaeyjum og tekið jólastopp. Áhöfnin á Guðmundi hinum Góða lagðist í víking um víðann sjó um miðjann júlí síðastliðinn þegar síðast var landað í Eyjum, og hefur gert strandhögg víða og aflað vel. Eins og forfeður vorir sem komu gjarnan með kistur fullar silfurs úr víking er kista okkar einnig full, nema í henni er silfur hafsins og okkar kista er STÓR. Þegar haldið var í hann heim stóðu vonir til að við næðum til Eyja einhvetíma á föstudaginn en það byrjaði að bræla á okkur í gær og einhver blástur mun verða í Kára mestan part leiðarinnar svo það mun örugglega eitthvað teigjast úr heimstíminu, jafnvel fram á laugardag. Það skýrist nú þegar nær dregur.

Um borð eru þrif  á fullu og á myndinn að neðan er Jonni búinn að taka hnífana úr einni flökunarvélinni og er að brína þá svo allt verið klárt þegar úthaldið hefst á ný eftir áramót. Hann hlakkar mikið til að knúsa frú Hjördísi, nei ég meinti Diddu sína. Didda, hver heldur þú að hafi komið þessu “frú Hjördís” inn í kollin á mér? Já hann er pjakkur hann Jonni en þú veist miklu betur um það en ég.

Hvað er þetta með myndir og augun hans Jonna eiginlega? En glaðbeittur er maðurinn og flugbeittur hnífurinn.

Hvað er þetta með myndir og augun hans Jonna eiginlega? En glaðbeittur er maðurinn og flugbeittur hnífurinn.

Öll færibönd eru tekin af og allt þrifið hátt og lágt.

Öll færibönd eru tekin af og allt þrifið hátt og lágt.

En svo þarf nú að taka kaffitíma á þessu líka. Sverrir sem er á næstu mynd segist vera Íslands eina von. Hvorki meira né minna. Við Sverrir erum sammála um að Bítlarnir séu besta hjómsveit allra tíma. En þegar ég líki Bjorn og Benny í Abba saman við Lennon og Mckarney þá fussar hann og sveijar. En staðreyndin er sú að þessi tvo tvíeiki hafa bæði samið ótrúlega margar frábærar melodíur.

Sverri finnst greinilega marmarakaka góð.

Sverri finnst greinilega marmarakaka góð.

Og menn gefa sér jafnvel tíma til að taka eitt lag í kaffitímanum.

Eddi tekur eitt lag og Himmi og Alli hlusta hugfangnir á.

Eddi tekur eitt lag og þeir Himmi og Alli hlusta hugfangnir á.

Svo er tekið stutt stopp í stakkageymslunni sem stundum er kölluð syndin því þar geta syndaselirnir fengið sér smók.

Þarna sitja syndaselirnir Gunni, Þröstur, Eddi, Sverrir og svo náttúrulega ég sem tek myndina innrammaðir í ósynduga seli en Kristó sem er nær og Alli fjær, hafa aldrei tekið upp á þeirri vitleysu að byrja að reykja.

Þarna sitja syndaselirnir Gunni, Þröstur, Eddi, Sverrir og svo náttúrulega ég sem tek myndina, innrammaðir í ósynduga seli. En Kristó sem er næst í mynd og Alli fjærst, hafa aldrei tekið upp á þeirri vitleysu að byrja að reykja.

Í síðustu færslu var ég að vinna við nýja verkfæratöflu í vélarúmið sem er búið að vera gæluverkefni hjá mér í þessum túr. Hér er mynd af henni og fyrstu verkfærunum sem komin eru á hana. Lengra verður ekki hins vegar ekki farið með gæluverkefnið í þessari törn.

Þetta er mikill munur frá því sem áður var. Strákarnir Árni og Kristó hafa svo haldið áfram málningavinnu í Bb.síðu vélarúmsins þar sem Benni, Óli og Haffi, sem núna eru í fríi, stoppuðu í þeirra síðustu törn.

Þetta er mikill munur frá því sem áður var, þó ég segji sjálfur frá. Strákarnir Árni og Kristó hafa svo haldið áfram málningavinnu í Bb.síðu vélarúmsins þar sem Benni, Óli og Haffi, sem núna eru í fríi, stoppuðu í þeirra síðustu törn. Ég stefni á að sýna mynd af því svæði í næstu færslu og væntanlega þeirri síðustu í þessum túr.

En mál málanna er þrif, þrif og aftur þrif.

Þarna er Vilberg að háþrýstiþvo undir einni flökunarvélinni.

Þarna er Vilberg að háþrýstiþvo undir einni flökunarvélinni.

Jæja, við mjökumst nær og nær heimahögum með hverri mínútunni sem líður og munum ná höfn í Eyjum á endanum. Eins og ég hálfpartin lofaði fyrr í færslunni þá meiga lesendur eiga von á einni færslu enn.

Þangað til, óska ég öllum alls hins besta.

Höfundur: B Gudjohnsen

des. 07

Sælt veri fólkið

Það ætlar aðeins að tegjast úr þessu hjá okkur og er aðal ástæðan fyrir því að síldin er í smærri kantinum og gengur því hægar í lestina. Einhver óvissa er um hvar verður landað því endanleg ákvörðun hefur enn ekki verið tekin um það. Það kemur allt í ljós á endanum. Stutt er í að lestin fyllist og þegar því marki er náð mun ákvörðun örugglega liggja fyrir.

Vinnslan og annar búnaður um borð hefur að mestu gengið snurðulaust þó alltaf falli eitthvað til, af og til. Það hefur þess vegna gefist tími til hjá okkur vélstjórunum að nudda okkur aðeins í málningastörfum.

Kristó er þarna að mála rör, en það er tímafrekt ef vel er gert.

Kristó er þarna að mála rör, en það er tímafrekt ef vel er gert.

Veislurnar hjá Himma halda áfram. Í hádeginu í gær var boðið upp á léttreyktann lambahrygg og í eftirrétt var heimalagaður ís með snikkersívafi.

Og svona lítur hann út, ísinn hans Himma og ég get vottað um það að góður var hann á bragðið.

Og svona lítur hann út, ísinn hans Himma og ég get vottað um það að góður var hann á bragðið.

Frikki er greinilega ánægður með ísinn hanns Himma

Frikki er greinilega ánægður með ísinn hanns Himma

Eins og áður segir að þegar vinnslan gengur vel, þá gefst okkur vélstjórunum tími í ýmis gæluverkefni og á næstu mynd sést færsluhöfundur vinna við nýja verkfæratöflu sem sett verður upp í vélarúminu.

Þegar þessi færsla er skrifuð er taflan komin á sinn stað, en reyndar algjörlega tóm.

Þegar þessi færsla er skrifuð er taflan komin á sinn stað, en reyndar algjörlega tóm.

En svo kom bilerí. driföxull í öðru mötunafæribandinu brotnaði og þurfti að bregðast skjótt við svo það hefði ekki áhrif á vinnsluna.

Þarna er búið að græja öxulinn og árni að koma sér undan bandinu. Hjá honum stendur Rabbi bátsmaður en hann er ætlar um áramótin að bregða sér til Tælands og dvelja þar í 40 daga. Honum mun örugglega ekki leiðast sú dvöl.

Þarna erum við búnir að græja öxulinn og Árni að koma sér undan bandinu. Hjá honum stendur Rabbi bátsmaður en hann er ætlar um áramótin að bregða sér til Tælands og dvelja þar í 40 daga. Honum mun örugglega ekki leiðast sú dvöl.

Jæja þetta verður ekki lengra í þetta sinn.

Við Guðmundarmenn biðjum allir að heilsa í land.

Höfundur: B Gudjohnsen

des. 05

Sælir lesendur góðir

Byrjað var að setja í framlestina í kvöld sem þýðir að við erum rúmlega hálfnaðir með að fylla og hylla fer í lokin. Það kulaði aðeins í gær en annars er yfirleitt ljómadi veður hérna á norðurslóðum. Þegar komið er svona langt inn í veturinn þá kemur sólin ekkert upp hérna, heldur kemur rétt skíma á himininn í hádeginu og svei mér þá ef það er ekki bara jafn bjart eða bjartara í tunglskyninu þegar máninn er á fylleríi, eins og hann er búinn að vera síðustu daga. Reyndar loga öll ljós sem við viljum að lýsi í Guðmundi hinum Góða.

Þröstur varð fyrir því óláni að rífa lestargallann sinn og var afar leiður yfir því. Hann dó hins vegar ekki ráðalaus frekar enn fyrri daginn og mundaði nálina af mikilli snild.

Þröstur er sérstaklega fimur á nálinni og tekur jafnvel að sér að bródera jóladúka fyrir eiginkonur áhafarmeðlima.

Þröstur er sérstaklega fimur á nálinni og tekur jafnvel að sér að bródera jóladúka fyrir eiginkonur áhafarmeðlima.

Menn eru misjafnlega virkir í ræktinni en þessir þrír láta ekki deigan síga í þeirri deild.

Vilberg er flottur og harður á því að verða flottari.

Vilberg er flottur og harður á því að verða flottari.

Þarna er Haukurinn kominn í alvöru átök enda búinn að bæta við þyngdina

Þarna er Haukurinn kominn í alvöru átök enda búinn að bæta við þyngdina

Árni er eitil harður naggli. Hann er þarna að takast á við sömu þyngd og Haukurinn sem er 40-50 kílóum þyngri en lyftir kannski bara ekki alveg jafn oft.

Árni er eitil harður naggli. Hann er þarna að takast á við sömu þyngd og Haukurinn sem er 40-50 kílóum þyngri, en lyftir kannski bara ekki alveg jafn oft.

Það verður líka að hafa gaman af þessu og hlæja.

Það verður líka að hafa gaman af þessu og hlæja.

Þetta eru bara létt lóð enda þegar ég spurði hvort ekki ætti að taka alvöru þyngdir þá var mér sagt að þessi æfing væri pumpuæfing en þetta tekur samt á eins og sjá má á Haukinum.

Þetta eru bara létt lóð eða þannig. Enda þegar ég spurði hvort ekki ætti að taka alvöru þyngdir þá var mér sagt að þessi æfing væri pumpuæfing en þetta tekur samt á, eins og sjá má á Haukinum.

Sjáiði kúluna á stráknum og þetta líka flotta tattoo.

Sjáiði kúluna á stráknum og þetta líka flotta tattoo.

En svo yfir í aðra sálma. Þegar verið er að dæla afla um borð er verkinu stjórnað úr brúnni og fara samskiptin fram með talstöð í brú og í hjálmana hjá strákunum á dekkinu, sem Sturla yfirfór svo vel um daginn.

Frikki 1.stýrimaður stendur sig vel í brúnni allar nætur og fram til hádegis þegar hann er um borð. Takið eftir gluggunum. Þessi mynd er tekin um kl.11:00 og ekki er birtan mikil.

Frikki 1.stýrimaður stendur sig vel í brúnni allar nætur og fram til hádegis þegar hann er um borð. Takið eftir gluggunum. Þessi mynd er tekin um kl.11:00 og ekki er birtan mikil.

Og  yfir í allt aðra sálma. Himmi stendur hér fyrir endalausum veislum og að þessu sinni var það folaldasteik með bernes og alles.

Valur er að leysa af hjáokkur er að eigin sögn einn af fáum orginal Þórshöfnurum sem enn búa á Þórshöfn. Hann er mikill veiðimaður og rjúpur og gæsir meiga virkilega vara sig á honum.

Valur er að leysa af hjá okkur og er að eigin sögn einn af fáum orginal Þórshöfnurum sem enn búa á Þórshöfn. Hann er mikill veiðimaður og rjúpur og gæsir meiga virkilega vara sig á honum.

 Þeir taka vel til matarins strákarnir þegar þeir koma inn af vaktinni. Að ég tali nú ekki um þegar veisla er á borðum.

Þarna sitja þeir Haukur, Vilberg, Stjáni, Rabbi og Valur og á diskunum er þarfasti þjónninn að ljúka sínu síðasta verki í þessum heimi.

Þarna sitja þeir Haukur, Vilberg, Stjáni, Rabbi og Valur og á diskunum er þarfasti þjónninn að ljúka sínu síðasta verki í þessum heimi.

Sumir þurftu svo að fá sér desert á eftir.

Biggi er sá eini í áhöfninni sem er fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta. Hann spilaði á sínum tíma allar stöður, nema markmannsstöðu, hjá Þór á Akureyri og framfleitti sér af því á tímabili. Biggi er búinn að róa síðan mánaðamótin otk.-nov. og er farinn að sakna Berglindar sinnar ákaflega mikið.

Biggi er sá eini í áhöfninni sem er fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta. Hann spilaði á sínum tíma allar stöður, nema markmannsstöðu, hjá Þór á Akureyri og framfleitti sér af því á tímabili. Biggi er búinn að róa síðan mánaðamótin otk.-nov. og er farinn að sakna Berglindar sinnar ákaflega mikið.

Við hinir söknum svítí pæjanna okkar líka og þó að ég sem þetta skrifa sé bara búinn að vera rúma viku á sjó þá sakna ég minnar samt. En svona er jú sjómannslífið. Einhleypu strákarnir sakna náttúrulega stelpnanna sem eiga fyrir þeim að liggja. Úpps það má kannski ekki segja svona en ég tala og rita bara Íslenskt mál en ekki neina heipokaloðmullu og hef þó ekki nefnt orðið að RIÐLAST einu orði.

Ástarkveðja frá norðurhöfum.

Höfundur: B Gudjohnsen