jan. 31
Komiði sæl og blessuð.
Enn erum við á miðunum en erum svona að klára þetta í nótt ef allt gengur að óskum. Það er loksins komin blíða á okkur svo ekki er hægt að kvarta yfir því og vonandi að síldin haldi sér utan við 12 mílurnur svona rétt á meðan við erum að klára þetta.
Strákarnir okkar í landsliðinu kláruðu þetta með glans í dag en fjandi var það nú tæpt á tímabili. Í tilefni dagsins verður letrið bronslitað en ef það ekki kemur þannig hjá ykkur þá endilega ýtið á F5.

Elli og Raggi að sansa

Haukur og Vilberg (ekki þó bakari)

Ísafoldin hin danska

Höfundur: Vefstjóri
jan. 30
Jæja gott fólk. Er ekki komið time á færslu?
Það er bara allt þokkalegt að frétta af okkur, búið að vera kropp en veðrið er svolítið að stríða okkur. Við eigum eftir ca. 2 sólarhringa í vinnslu en í augnablikinu lítur ekki nógu vel út með að fá fisk í það, bræla og fiskurinn eitthvað að fela sig. En það stendur vonandi til bóta á morgun.
Það voru aldeilis fínar fréttir af loðnunni í gær og þó þetta sé nú ekki mikill kvóti þá er hægt að gera heilmikil verðmæti úr þessu. Svo er náttúrulega alltaf von á meiru og víst er að þjóðarbúinu veitir ekki af þessu.
Við fengum fengum vini okkar á Norðborg í heimsókn í dag en það bilaði ein myndavél við flökunarvél hjá þeim og bjuggum við, eða réttara sagt Jonni bjó svo vel að eiga varahlut í þetta hjá þeim. Smellti nokkrum myndum af þessu glæsilega skipi er þeir renndu upp að okkur.

Norðborgin er með 9 VMK flökunarvélar - við erum með 4

Um borð er bræðsla sem bræðir afskurðinn og má sjá reykinn úr henni í frammastrinu

Svo er náttúrulega stórleikur á morgun og vonandi að Frakkar gangi nú niðurlútir af velli.
ÁFRAM ÍSLAND

Höfundur: Vefstjóri
jan. 26
Sælt veri fólkið.
Það er helst af okkur að frétta að við kipptum okkur til í gær. Síldin var svo helvíti smá þarna norður frá að við gáfumst hreinlega upp og erum nú komnir 120 sjómílum SV, nánar tiltekið vestur af Vikna. Fengum í alla tanka í gær af 300 gr. síld svo við erum bara góðir í bili. Það spáir annars brælu hérna í dag og eitthvað fram á nóttina svo það gæti farið svo að við yrðum fisklausir en við vonum það besta.
Þó að túrinn hafi nú ekki verið sá skemmtilegasti þá hafa strákarnir í handboltalandsliðinu séð um að skemmta okkur með háspennu leikjum og vonandi að svo verði áfram. Kannski full mikil spenna í þessu hjá þeim en í lagi meðan þeir ekki tapa. Svo er bara að taka Rússana í dag.
ÁFRAM ÍSLAND


Höfundur: Vefstjóri
jan. 24
Sælinú.
Jæja, þetta er nú allt að komast í gang hjá okkur og er vinnslan búin að vera í gangi í rúman sólarhring. Það eru alltaf einhverjir hnökrar svona í byrjun en það er ekkert mikið núna. Síldin er heldur smá fyrir okkar smekk en það er nú bara eins og það er, maður fær ekki alltaf allt sem maður vill. Norðmenn eru að fá stærri síld svolítið sunnar en hún er öll innan við 12 mílurnar svo við verðum að gera okkur þetta að góðu í bili að minnsta kosti.
Þegar við erum hérna við Noreg er aldrei langt í gæsluna og eru þeir sífellt að snudda í kringum bátana, bæði erlenda og norska báta. Til að mynda fóru þeir í dag tvisvar sinnum í sama færeyska skipið til eftirlits. Ekki vitum við hvað þeim gekk til en víst er að eftirlitið er mikið meira hér heldur en við Íslandsstrendur en norsarinn á jú helling af seðlum sem þeir geta sett í þetta, eitthvað sem við eigum ekki.

K/V Barentshav hefur verið á slóðinni í dag. Þetta er nýtt skip í svokölluðum Barentshav-klassa og á Remøy Management skipið en leigir strandgæslunni það til 15 ára. (Myndin er tekin í gegn um sjónauka)
Kystvaktin fer í ca. 3000 heimsóknir í skip á ári og þar af eru 60% í erlend skip. Við fengum heimsókn frá danska varðskipinu Triton þegar við vorum í færeyskum sjó og var greinilegt að þeir voru ekki eins sjóaðir í þessu, voru lengi að möndla bátnum við síðuna hjá okkur og gekk illa að koma mönnunum um borð og ekki síst frá borði. Norðmennirnir eru aftur á móti eldsnöggir að þessu og þaulæfðir. Báturinn þeirra er sem límdur við síðuna og ekkert mál fyrir eftirlitsmennina að koma um borð.

Þetta er rússneski togarinn Boris Syromyatnikov. Það eru nokkrir rússar hérna en þeir hafa reyndar oft verið fleiri.

Höfundur: Vefstjóri
Nýjustu ummælin