Website counter
feb. 27

Sælt veri nú fólkið.

Þegar við erum á loðnuveiðum eru WMK-kallarnir ekkert aðalgæjarnir um borð. En það er með þá eins og allt annað. Þegar við höfum vanist á eitthvað, hvort sem það er gott eða vont, þá einhvernveginn……ja..þið skiljið hvað ég meina. Nú er svo komið með okkur að við erum farnir að sakna hans Jonna alveg ótrúlega mikið. Það er alltaf verið að tala um hversu gaman það væri ef Jonni væri hér og hvað hann myndi nú gera og segja og svoleiðis. Við fórum á stúfana og grófum upp gamlar myndir:

Hér er Jonni að fikta í pappavélinni.

.

.

Hér er hann kominn með "puttana" í loft-tjakkana....

.

.

Jonni að jústera elskuna sína.

Ef þið viljið sjá meira af ferðum Jonna þá eru þær allar í myndaalbúminu, merkt “Ferðir Jonna um skipið”

Af veiðum og vinnslu er allt gott að frétta. Vinnslan hefur gengið sleitulaust síðan þarna á miðvikudaginn og ekki slegið feilpúst. Afturlestin er orðin full og þá eru eftir um 3 dagar í frystingu. Myndatökumaður síðunar var á staðnum þegar Þröstur og Hjölli voru að setja í tæki.

Þeir eru eins og síamstvíburar vinirnir.

Fréttir úr eldhúsinu:

Himmi er orðinn svo hyper-hress að hálfa væri nóg.

Hann er sannkallaður sólskinsdrengur

Svo var hann líka með aðstoðarmann..ekki af verri endanum.

Jonni að flaka glænýja línuýsu.

Þakka þeim sem hlýddu.

veriði sæl.

Höfundur: Haffi

feb. 24

Sæl veri þið.

Þá erum við byrjaðir á veiðum aftur. Löndunin gékk vel og tók náttúrulega þessa tvo daga eins og við var að búast þegar svo mikið magn er annars vegar.

Kári jötumó er kominn í einhverja fílu núna og er byrjaður að blása hér við Eyjar “það er sem sagt smá blástur í blíðunni í Eyjum núna”. En verra er skapið í honum á Faxaflóanum, því þar er Kári núna orðinn verulega fúll og því höfum við ekkert þangað að gera fyrr en honum rennur reiðin.

Ég smellti af einni mynd af Haffa með tandurhreina síu sem hann var að fara að setja aftur í austurskiljuna hjá okkur. Sigga, þetta er nú ekkert venjulegur maður sem þú átt,  sem betur fer. Því hvað væri varið í hann ef hann væri venjulegur?

Haffi er alltaf til í að sprella. En hvað finnst ykkur um mottuna sem hann er með framan í sér?

Hjölli er í afleysingum í þessum túr og í þeim síðasta, en afleysingamenn gerast varla betri en hann og aðrir úr fasta genginu. Hjölli er hokinn af reynslu og öllum hnútum kunnugur hér um borð. Svo fylgist hann alltaf voðalega vel með öllu.

Hún er flott fjallasýnin til Eyja og svo glittir í bæinn yfir Eiðið.

Ekki er hún síðri Eyjafjalla sýnin með jökulinn glæsilega sem svo oft skefur skýin af himninum yfir Vestmannaeyjum í norðaustan vindátt.

Þegar Kári er í þessum ham þá veitir ekki af að strákarnir hjálpist að í kassanum við að leggja nótina rétt niður, því hún tekur töluverðan vind á sig.

Strákarnir fara þó létt með þetta enda þrælvanir menn.

Róbert 1. stýrimaður er kominn um borð núna og Frikki fór í frí.

Róbert er á kraftblökkinni og stjórnar á dekki á meðan Sturla stjórnar úr brú með yfirsýn á öllu. Róbert hefur greinilega haft það gott í fríinu því það létt yfir karli.

Himmi stendur fyrir sínu í eldhúsinu eins og venjulega og ætlar að bjóða upp á kjötsúpuveislu í kvöld.

Það vantar ekkert upp á einbeitinguna hjá Himma, eins og þið sjáið, enda verður kjötsúpan örugglega góð.

Þetta verður nú ekki lengra í þetta sinn, en þó að lokum. Já Auðbjörg það er alltaf gaman að fá ummæli og það verður ekki af þér tekið að þú stendur þína pligt í þeim efnum og Rebekka ég mun knúsa bóndann fyrir þig og reyna að fá stákana til að hjálpa mér við það. Það er því líklegt að bóndinn fái nokkur knúsin.

Kveðja af Guðmundi hinum Góða.

Höfundur: B Gudjohnsen

feb. 22

Sælt veri fólkið

Þá erum við komnir til hafnar í Eyjum, til löndunar úr þessum öðrum loðnutúr á þessari vertíð. Skipið er nánast fullt og liggur fyrir að það mun taka tvo daga að landa í þetta sinn.

Í Vestmannaeyjum er blíða eins og venjulega en núna er blíðan svolítið svöl. En fallegt er veðrið ef maður er staddur réttu megin við gluggann.

Þó að Guðmundur Góði sé stór og glæsilegur þá virkar hann það ekki undir Heimakletti 283m háum. En Heimaklettur myndi líka virka smár ef hann væri kominn við hliðina á Látrabjargi, 441m háu.

Takið eftir hvað Guðmundur situr djúpt í svona fullur af verðmætum.

Jæja, þetta er nú bara svona örfærsla svo hún verður þá ekkert lengri en þetta.

Kær kveðja úr Eyjum.

Höfundur: B Gudjohnsen

feb. 20

 

Hæ, hæ.

Hér malar frystingin á fullu og afturlestin orðin full sem þýðir að við erum rúmlega hálfnaðir með að fylla frystilestina. Við eigum svo að koma með eitthvað til að landa í hrognakeistingu til viðbótar við frystiafurðirnar. Annars gengur lífið hér um borð sinn vanagang, Himmi sér um veislurnar og mórallinn í toppi.

Himma limm er nú orðinn Himma trimm trimm. Hann hefur það greinilega alltof gott hjá henni Svövu sinni því hann bætti víst eitthvað á sig í síðasta fríi. Himma trimm trimm er hins vegar staðráðinn í að verða Himma slimm slimm og ná upp góðu þreki fyrir sumarið eins og myndin að neðan ber með sér.

Takið eftir að Himmi er hreifður á myndinni, slíkur var farturinn á karli.

Ég brá mér niður í lest og hitti þar fyrir Stjána og Sverri Liverpúllara sem voru að setja í efsta lagið í afturlestinni.

Sverrir er þarna að fylla þennan skáp.

Eins og þið sjáið þá er Stjái þarna að raða í efsta lagið.

 Svo lá leið mín upp í pökkun.

Pökkunin er í góðu lagi þegar strákarnir geta tekið að sér fyrirsætuhlutverk og ég sem tók myndina að þvælast um skipið að taka myndir.

Vilberg staldraði þó stutt við hjá Rabba Tælandsfara og þaut aftur í tækjasal til að koma úrslættinum af stað úr tæki sem var tilbúið.

Úrslátturinn byrjaður úr þessu tæki. Vilberg er með frosna loðnu í kjaftinum sem þíðir að okkur hefur ekki enn tekist að fá Himma til að elda handa okkur loðnu.

Úrslátturinn kominn af stað úr þessu tæki. Vilberg er með frosna loðnu í kjaftinum sem þýðir að okkur hefur ekki enn tekist að fá Himma til að elda handa okkur loðnu.

Leið mín lá aftur tækjasalinn þar sem Frikki og Fannar pössuðu upp á að tækin væru fyllt jafnóðum og slegið var úr þeim. Þeir gáfu sér þó tíma til að sitja fyrir hjá myndasmiðnum.

Svona mun Fannar verða til kjálkans ef hann kemur til með að standa á toppi Jarðar. Toppur Jarðar er náttúrulega Everest, ef einhver skyldi ekki vita það. Hvorki ég né Frikki munum nokkurn tíma standa á þeim stað en Fannar er til alls líklegur í þeim efnum.

Í síðasta túr var tækjametið 38 á vakt en nú er búið að slá það því jaxlarnir á myndinni að neðan tóku 40 tæki á einni vakt um  daginn. Það gékk reyndar allt upp hjá þeim. Þeir skráðu á sig fyrsta tækið einni mínútu eftir að þeir komu á vakt og það síðasta einni mínútu áður en þeir fóru af vaktinni. Á báðum vöktum er reyndar gríðarlegir jaxlar og frystigeta skipsins algerlega nýtt til fulls. En met er alltaf met og af því tilefni var myndin að neðan tekin í einu tækjastoppinu.

Svona leit metvaktin út eftir að vera búnir að fylla í öll tækin þannig að frystikerfið hafði nóg að gera við að ná niður frostinu svo stákarnir gætu farið fram aftur að slá úr og fylla allt upp að nýju.

Þessi færsla gékk ekki þrautalaust fyrir sig. Netsambandið rofnaði, myndir frusu og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta hafðist þó að lokum.

Bæ,bæ.

Höfundur: B Gudjohnsen