Sælt veri fólkið.
Þá er löndun lokið á Þórshöfn og gékk hún mjög vel. Stákarnir í löndunargenginu tæmdu stútfullar frystilestarnar á tæpum 18 tímum en sú vinna er ekki gerð á mikið skemmri tíma en það.
Það gékk hins vegar ekki þrautalaust að komast frá bryggju á Þórshöfn, því Kári rauk upp í rosalegt reiðiskast akkúrat þegar verið var að sleppa og stóðu, upp í 30 m/sek. vindhviður á Bb. síðu Guðmundar og klesstu honum að bryggjunni svo hliðarskrúfunar höfðu ekkert á móti þessum ósköpum. Kári þurfti þó aðeins að kasta mæðinni svo hann datt niður fyrir 10 m/sek og losnuðum við þá úr prísundinni.
Við Haffi skelltum okkur í Fánasmiðjuna á Þórshöfn og fengum okkur nýja samfestinga í inniverunni, sem eru svo flottir að vel mætti skella sér á ball í þeim. Það kom meira að segja til tals hvort þarna væri ekki komið dressið fyrir næsta sjómannadagsball.

Við tökum okkur bara hev.... vel út, þó ég segi sjálfur frá.

Sko, þarna eigum við heima.

Þetta eru sérlega glæsilegir gallar og svo glansar svo flott á þá. En það er nú ekkert, því ég fer nokkuð nærri um að Siggu og Böddu finnst mennirnir með þessi breiðu bök vera ennþá flottari en gallarnir.
Þegar við losnuðum úr böndum Kára jötumó þá tók við barningurinn við bræluna á langri leið til loðnumiðanna á Faxaflóanum. Guðmundur hin Góði fer þó vel á þessu en eðli málsins samkvæmt er gangurinn í hægari kantinum.

Sturla er óþreyjufullur að komast á miðin en verður eins og aðrir menn, bara að sýna þolinmæði þegar veðurguðirnir ólmast í þessum ham.

Já sjómennskan, já sjómennska, sjómennskan er ekkert grín. Tra, la, la, la, la......
Þegar verið er á svona stími þá er rólegt yfir mannskapnum. Allir hlutir sjóklárir og búnaðurinn tilbúinn til veiða þegar við komum á miðin.

Heiðar, sem oftast er kallaður Heiddi, les í blöðin. Það má gera ráð fyrir að Icesave bregði fyrir í þeim textum sem hann er að lesa. Heiddi er aldursforsetinn í áhöfninni og ég vona að ég verði jafn sprækur og hann þegar ég kemst á sjötugsaldurinn.

En svo eru aðrir sem þurfa að hvíla sig þó helmingi yngri séu. En það er líka ágæt að safna kröftum.
Í sjónvarpinu var Arsenal að spila í ensku deildinni og Nallararnir láta ekki þann leik fram hjá sér fara þegar rólegheitin eru alsráðandi.

Víðir er erkinallari og fylgist vel með sínum mönnum

Haffi, sem er hörkunallari er greinilega áhyggjufullur í byrjun leiks þegar staðan var 0-0. Það byrja víst allir leikir þannig. Þær áhyggjur voru þó ástæðulausar því leikurinn fór 3-1 fyrir Arsenal. Til hamingju með það nallarar. Manchester United vann svo sinn leik stuttu seinna en ég er ekki viss um að nallararnir séu jafn ánægðir með það. Ég óska samt Júnnurum til hamigju með sinn sigur líka.
Einn er sá staður í skipinu þar sem rútínan er alltaf söm við sig þó annars staðar sé rólegt, en það er náttúrulega eldhúsið.

Fannar var mættur í eldhúsið að rétta Himma limm hjálparhönd við saltfisksalatið.
Himmi var búinn að taka út fyrir kvöldmatinn og ætlar greinilega að slá upp partíi. PULSUPARÍ, vei, vei. Til sjós er það gjarnan gert að kokkar eru með eitthvað létt og þægilegt þegar það brælir. Pylsur eru of kallaðar brælufæði en þær eru líka ágætar af og til og ekkert að því.

Þarna gefur að líta partísnakkið. Ég er þó nokkuð viss um að partíhaldarinn mun ekki stíga dans í þessu partíi sem hann ætlar að standa fyrir.
Til marks um rólegheitin sem eru á svona brælustýmum er þessi færsla, því það er greinilega rólegt hjá hjá mér líka verandi að nudda mér í þessari færslu núna.
Á morgun munum við svo ná á loðnumiðin og þá verða sko engin rólegheit.
Róleg brælukveðja frá Guðmundi VE

Nýjustu ummælin