apríl 28
Jú, jú… við erum á lífi en bara ekkert mikið að blogga um það.
Við erum þessa stundina á landleið og reiknum með að vera í Eyjum eftir hádegið á morgun. Þessi túr er búinn að ganga alveg ljómandi vel og vorum við að klára frysta síðustu pöddurnar í kvöld. Það voru nákvæmlega 6 sólarhringar og 2 1/2 klst frá því frosti var hleypt á fyrsta tækið þar til það síðasta var sett á og liggja nákvæmlega 777.294 kg í valnum sem gera 5.305 kg á klukkutímann eða 127.338 kg á sólarhring. Það er bara fjandi gott, ekki satt?
Þetta er að öllum líkindum síðasti túrinn á kolmunna og líklega verður farið á síld eftir miðjan maí en tímasetningin er ekki komin á hreint. Þangað til, hafið það sem allra best.

Höfundur: Vefstjóri
apríl 24
Jæja, er ekki kominn tími á smá blogg.
Það helsta sem á daga okkar hefur drifið síðan síðasta færsla birtist að það er komið sumar og viljum við óska öllum gleðilegs sumars. Af kolmunnaveiðum og vinnslu er það að frétta að það er nú ekkert mok en nóg í vinnsluna og er búin að vera vinnsla í gangi síðan seinni partinn á fimmtudaginn eða nánast í allt sumar
Við reynum að hafa hráefnið sem ferskast og tökum 1 hol á dag því kvikindið geymist ekkert allt of vel.
Annars er bara allt í gúddí eins og venjulega og Man. Utd. eru bestir!

Höfundur: Vefstjóri
apríl 21
Sælt veri fólkið til sjávar og sveita.
Heldur dróst nú landlegan á langinn en eins og menn muna nú kannski þá komum við í land aðfararnótt föstudags en skipið sem átti að taka afurðirnar frá okkur tafðist og kom ekki fyrr en eftir hádegið á mánudag. Allar geymslur fullar í Eyjum svo það var ekki um annað að ræða en að bíða eftir skipinu og fórum við ekki út fyrr en í gærkvöldi. Erum í þessum skrifuðum á leiðinni á miðin og áætlum að vera þar snemma í fyrramálið.
Eitthvað er lítið um myndasmiði á fleytunni núna og lýsi ég hér með eftir einum slíkum. Hafþór vinur minn sendi mér reyndar eina í dag af Simpson fjölskyldunni en hún var ekki hæf til birtingar en takk samt vinur.
Góðar stundir

Höfundur: Vefstjóri
apríl 14
Jæja góðir hálsar. Þá er þessi túr að verða á enda runninn en við lögðum í hann upp úr hádeginu og gætum orðið í Eyjum annað kvöld. Þetta er búiða að ganga alveg ljómandi vel þó fiskiríið hafi nú ekkert verið neitt ofboðslegt. Náðum við að halda vinnslu allan tímann og reiknum við með að klára frystingu í fyrramálið og liggja þá um 765 tonn af eðal kolmunna í valnum, gaddfreðinn.
Annars er allt í gúddí hér, ekkert gos eða skýrsluvesen. Við fengum þó heimsókn frá skósveinum Þórhildar danadrottningar í gær og voru það skipverjar af varðskipinu Vædderen. Var þar fríður flokkur sveina og meyja á ferð og reyndist allt tipp topp hjá köllunum eins og við var að búast.

Vædderen

Höfundur: Vefstjóri
Nýjustu ummælin