Sælt veri fólkið
Þá eru við lagðir af stað á ný og nú til að elltast við síld og makríl. Mikil vinna var við að hreinsa skipið eftir öskufallið í Eyjum um daginn sem smaug út um allt, yfirfara bæði trollin og græja ýmislegt annað. Tekið var stutt prufutog í morgun með litlum árangri en nóg til að láta línuna snúast og sjá hvort græjurnar virkuðu ekki eins og skyldi. Við erum núna á rúntinum að leita og ég segi að nú má síldin og makríllinn passa sig.
Annars var ég í fríi í apríl og var stundum að hugsa um hvort maður ætti að henda inn frífærslu en ekkert varð nú úr því.
Ég og fleirri áhafnarmeðlimir skelltum okkur norður til Akureyrar til að upplifa, ásamt mörgum úr áhöfninni sem búa fyrir norðan, fertugafmælisveislu sem Himmi stóð fyrir og var þar mikið fjör.

Það ver mikið fjör á Himma enda maðurinn Hrókur og veislan með eindæmum fín.
En svo er nú eitt sinn þannig farið að kvennhylli manna er misjöfn og gæðunum ekki alltaf jafnt skipt. Himmi hefur greinilega fengið eitthvað meiri skammt af henni en margur annar.

Sjáið þið nú bara þetta. Spjarirnar voru hreinlega tættar af manninum og enginn má við margnum því eins og þið sjáið eru stúkurnar tvær og Himmi greiið bara einn
Eftir Akureyrar ferðina lág leið mín inn í Þórsmörk til að berja augum gosið á Fimmvörðuhálsinum. Sturla skipstjóri hafði hafði hlaupið upp á Morrisheiði í Goðlandi, sem er á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls, til sömu erindagjarða og ég var í nú, rétt áður en hann skellti sér norður í veisluna hanns Himma og á skíði. Já, það er kraftur í karlinum.

Þetta er glæsilegt. Ekki satt? Myndin er þó tekin úr töluverðri fjarðlægð með serkri aðdráttarlinsu af hæð norðan við Húsadal í Þórsmörk.
Þegar túristagosinu á Fimmvörðuhálsi lauk sett jökullinn heldu betur í annan gír og fór að spúa ösku og eimyrju úr toppgígnum.

Eyjafjallajökull er ólíkt fallegri skjannahvítur en svona kolsvartur þó engu að síður sé hann tignalegur. Ógnvekjandi er hann þó í þessum ham.
Við í Eyjum höfum verið ótrúlega heppin að sleppa við öskujukkið en það hlaut þó að koma að því að við fengum á endanum yfir okkur öskuregn, sem þó var aðeins lítið sýnishorn af því sem blessaðir bændurnir undir Eyjafjöllum hafa mátt þola. Þetta litla við fengum að kynnast var þó algjör viðbjóður og litaði bæinn grásvartann. Allt eins á litinn. Götur, húsþök og annað.

Sami liturinn á öllu. Götum, húsþökum og Heimakletti.
Það hefur núna farið fram mikið heinsunarstarf í Eyjum eins og strákarnir fengu að kynnast hér um borð og allt að verða fínt á ný. En á meðan jökullinn verður áfram í þessum ham þá er einginn óhuldur fyrir sendingum hanns.
Jæja þetta var nú aðeins öðruvísi færsla en venjulega og líklega verður sú næsta hefðbundnari.
Síldar og makrílkveðja frá Guðmundi VE

Nýjustu ummælin