Website counter
júní 29

Sæl veriði.

Þá er túrnum alveg að ljúka, síðustu kassarnir að renna í frystilestina sem tekur varla við meiru. Þetta hefur gengið glimrandi vel ef horft er heilt yfir. Þegar þessi orð eru rituð þá erum við austur af Eyjum. Og meðan við bíðum eftir að komast inn þá er tíminn notað til að renna fyrir fisk. Iain er gríðarlega öflugur með stöngina og setur í nokkra karfa og tekst svo að veiða múkkaræfil sem átti sér einskis ills von.

Yeahhh...but the picture don't lie!!

.

Það þarf nú ekki mikið til þess að gleðja skotann.

.

The biggest catch and most unexpected.

.

Frikki hló bara að aðförunum, sagði að sér finndist aflabrögðin hjá Iain frekar klén og klisjukennd.

Fleiri myndir í albúminu eða smella hér.

Höfundur: Haffi

júní 26

Sæl veriði og takk fyrir síðast.

Lítið hefur á daga okkar drifið frá því síðast. Veiðar hafa gengið og vinnslan hefur rúllað eins og olíusmurður engill. Afturlestin hefur nú fyllst af gómsætum makrílafurðum og reiknast þá okkur til að um það bil fjórir sólarhringar séu  eftir í vinnslu.  Mannskapurinn kemur vel í holdum eftir túrinn, við stefnum á að fitna svipað og makríllin en hann fitar sig um 30% á aðeins mánaðartímabili sirka. Hilmar stríðselur okkur kallana svoleiðis að hálfa væri helmingi meira en nóg. Hann er sannkallaður Mídas nema hann breytir öllu í sælkeramat. Ég legg til að Hilmar verði hér eftir kallaður Mídas…ég held að hann verði líka bara ánægður með það.

Ég var eitthvað að fara yfir myndir á frívaktinni og rakst á myndir frá því fyrir sjómannadag. Þar erum við að grilla á bryggjunni á Þórshöfn. Við vorum fáir eftir þarna um kvöldið; Himmi, Bjössi, Árni, Frikki, Víðir og undirritaður. Frikki og Víðir voru víðsfjarri að eiga eitthvað við veiðarfæri og náðust ekki á mynd. Á grillinu er gúllas og lambalærisneiðar. Þetta er annað skiftið í sögunni sem reynt er að grilla gúllas. Fyrri tilraunin var þegar Kalli Helga í Toppnum bauð Einar Ottó í mat……báðar tilraunir misheppnuðust.

Þessa mynd grunar mig að Árni hafi tekið. Ljósmyndatæknina lærði hann af Tobba Villa enda ófáar myndirnar sem hann tekur í þessum dúrnum.

.

Næsta mynd er í svipuðum stíl. Hún hefur að ég held birst áður en til að passa upp á setteringuna kemur hún í beinu framhaldi af fyrri myndinni.

Líkt og Árni notar þessi einstaklingur hvert tækifæri til að koma sér í mynd.

Þangað til næst..

Höfundur: Haffi

júní 23

Sæl veriði.

Jújú, þið gátuð rétt, það er allt gott af okkur að frétta. Veiðar og vinnsla ganga vel, það hefur ekkert stoppað síðan við dýfðum trollinu fyrst í hafið í túrnum. Að vísu stöðvaðist vinnsla augnablik rétt fyrir hádegi, svona rétt á meðan undirritaður þurfti smá athygli, mér fannst ég bara orðinn svo afskiftur eins og Jonni myndi orða það.

Áhafnir hinna ýmsu skipa hafa nú verið að slá saman í reiðhjól og vespur. Við vildum að sjálfsögðu ekki vera minni menn og ákváðum að senda Fannar Freyr út af örkinni og kaupa eitt stykki fararskjóta, helst fagurbláan. Ekki urðum við fyrir vonbrigðum þegar hann birtist á kajanum á Þórshöfn. Að vel athuguðu máli komumst við að því að Fannar hafði farið 8000% yfir ákveðið hámark í fjárútlátum. Nú til að gera langa sögu stutta( Bjössi) þá fer vel um hjólið í hjólageymslunni.

Þarna má sjá þegar við hífðum gripinn um borð. Vilberg keypti af þessu tilefni glænýja vettlinga til að missa nú ekki gripið á frambremsunni.

.

Þess má geta að þessar veiðigræjur verða notaðar í hverri þeirri höfn sem við komum til með að landa. ( vildi bara vara kvótaeigendur við, allavegana þá sem eiga fallegan kvóta. Annars verður allt veitt á þetta ef ég þekki strákana rétt)

Og alveg rétt…ég gleymdi næstum því að minnast á hitann. Hitinn hefur verið töluvert fyrir ofan meðallag.

Sæl að sinni.

Höfundur: Haffi

júní 21

Sælt veri fólkið.

Eins og komið hefur fram þá erum við nú á makrílveiðum suðaustur af landinu. Frystingin gengur eftir atvikum vel. Makríllinn þarf mikið meiri tíma í frystitækjunum heldur en síldin þannig að það hækkar hægt í lestinni að mörgum finnst.

Ég tók eina rispu með myndavélina góðu….látum myndirnar tala.

.

Konstanín og Þröstur henda að mörgu gaman í lestinni.

Róbert er dagfarsprúður drengur. Hérna má sjá gripinn glottandi út í bæði.

.

 Gæti verið fermingarmynd af Benna.

Gæti verið fermingarmynd af Benna.( Þura, ef þú gætir grafið upp slíka mynd væri hún vel þegin)

.

Hilmar Sæmundsson er alltaf frábært myndefni. Í stuttu spjalli á leiðinni frá Akureyri til Þórshafnar trúði hann mér fyrir því að honum hefur alltaf langað til að verða ljósmóðir. Ekki gekk það eftir en hugur hans er einhvernvegin alltaf í áttina að slíku námi.

Hérna er Hilmar að æfa sig....

Hér er Hilmar að æfa sig í móttöku:" þetta lítur alveg vel út...nú er bara að vera rólegur...engan æsing"

Lifið heil

með bestu kveðjum

Höfundur: Haffi