Website counter
júlí 04

Sæl veriði.

Síðast þegar fréttist af okkur vorum við að bíða eftir löndun. Í stuttu máli fór löndun mjög vel fram og skilaði löndunargengið vel sínu verki. Vegna veðurs þurfti síðan að fresta brottför um einhverja klukkutíma.

Eins og fram kom í færslu hér á undan þá var keyptur fararskjóti einn forkunnarfagur, fagurblár, gerður af meistaranshöndum. Í löndunarbiðinni var hann hífður í land og Fannar Freyr tók að sér að þeysa á honum um eyjuna, annarsvegar þvera og hinsvegar endilanga. Margt var að sjá enda er mottó-ið hjá Fannari: “Fer hægt og margt sér”.

Hér er gripurinn kominn í land og fór í gang í fyrsta starti.

.

Takið sérstaklega eftir klæðnaði ökumannsins. Hann er í Nokia skófatnaði, galla frá 66°N og með glæran hjálm á höfði.

.

Neinei, hér er rétti útbúnaðurinn kominn utan á kappann.

Fleiri myndir af fararskjótanum hér.

Nú, lengri verður fæslan ekki í bili en svona til að tala eitthvað um veiðar og vinnslu þá ganga bæði veiðar og vinnsla vel.

Takk í dag

2 ummæli um “Frá makrílveiðum.”

  1. Klefó segir:

    Geggjuð færsla frá þér, fæ að lúlla í kojunni þinni í dag Haffi minn, kveðja Klefó!

  2. Auðbjörg segir:

    Strákar, hvað er svo að frétta eftir allan þennan dauða tíma sem þið eruð ekki búnir að vera tengdir.

Skrifaðu ummæli

Spam protection by WP Captcha-Free