Já, þetta gerist víst á bestu bæjum að það verði hlé og biðjumst við velvirðingar á því en við höfum verið í smá vandræðum með hýsingaraðilann. Hann heimtaði pening og fékk hann en var ekki sáttur við hvernig hann fékk hann. Já, gott fólk, peningur er ekki bara peningur
En nóg um það.
Við erum sem sagt búnir í túrnum sem síðasta færsla var af og komnir af stað á ný. Fórum frá Þórshöfn á föstudagsmorgun og byrjuðum á að skarka í Héraðsflóanum og í Bakkaflóa í von um að fá síld. Gekk það að hluta til eftir en þó ekki í því magni sem við þurfum og erum við nú komnir á makrílmiðin A af landinu, nánar tiltekið á Rauða torgið og erum við á fyrsta holi hérna.
Læt þetta duga í bili, verð með myndir og læti í næstu færslu sem verður vonandi ekki langt í.



Þriðjudagur 20. júlí 2010 kl: 19:01
Loksins, loksins en afsokun er tekin til greina…..
Kvedja frá DK
P.S. bíd bara róleg eftir myndunum……………………..