Sæl veri þið
Gott er að síðan okkar sé komin aftur upp á veraldarvefnum.
Af okkur er það að frétta að vinnsla og frysting gengur eins og best verður á kosið og enn er það makríllinn sem allt gengur út á. Það er þó ljóst að við verum að fara að leita meira eftir síldinni upp úr þessu.
Ákveðið var af áhöfninni að láta gera fyrir okkur boli og húfur og kom sendingin um borð í síðasta túr. Gríðarleg sala var í þessum tískufatnaði svo lág við slagsmálum, þegar menn reyndu hvað þeir gátu til að vera sem fremstir í röðinni þegar sjoppan opnaði. En allt fór þetta þó vel að lokum.
Myndasyrpan að þessu sinni er úr síðasta túr sem átti að koma í færslu þá, þegar síðan okkar datt út. Okkur og öllum aðdáendum hennar um allan heim til mikils ama.
Himmi er reyndar kominn í frí núna og hefur það örugglega gott með Svövu sinni á hjólhýsaferðalagi, í allri blíðunni sem er búin að vera undanfarið.

Og Hjölli bættist í hópinn. Af þessum mönnum, sem eru svo glæsilegir að upplagi, má sjá að lengi getur gott batnað. Bara við það að klæða sig rétt.
Haffi er líka kominn í frí og ólmast nú við að smíða bekki, koffort, súlur og annað sem til þarf í þjóðhátíðartjald handa Siggu sinni. Á milli þess sem hann skellir nokkra hringi á brautinni á mótorhjólinu sínu.

Haffi var svo flottur í tauinu á þessari vakt að það var með engu móti hægt að senda hann undir palla að þrífa.
Á myndinn að neðan eru þeir Fikki stýrimaður sem nú er kominn í frí og ætlar að gera víðreist um norðurlönd og Kiddi sem er sonur Sigga heitins Einarssonar og Guðbjargar Ísfélagsdrottningar. Kiddi kemur oft í afleysingar hér og stendur sig með príði. Alltaf með bros á vör.

Glaðbeittir náungar þeir Frikki og Kiddi og ekki skemmir fyrir þeim hversu flott þeir eru dressaðir.
Jæja, lengri verður þessi tískusýning ekki og lofa ég því að myndir í næstu færslu verða nýrri af nálinni.
Makrílkveðja frá vel dressuðum Guðmundarmönnum.




Miðvikudagur 21. júlí 2010 kl: 10:04
Vááá ekkert smá sætir strákar, en hvar eru húfurnar ?
Miðvikudagur 21. júlí 2010 kl: 10:05
Gleymdi að segja gangi ykkur vel.
Miðvikudagur 21. júlí 2010 kl: 12:17
Þeir gerast ekki sætari:) góða veiði
Miðvikudagur 21. júlí 2010 kl: 17:16
Rooooooooooooooooooooooooooooooosalega flottir strákar……..