Sumir kunna eflaust að hugsa sem svo að það skipti ekki máli hvort síðan er uppi eður ei. Þeir blogga hvort sem er ekkert þessir anskotar.
En af okkur það að frétta að vinnslan hefur gengið vel og er útlit fyrir löndun fljótlega eftir helgi. Þá komast einhverjir í frí og aðrir koma endurnærðir úr fríi um borð eins og gengur. Framundan er Þjóðhátíð í Eyjum og eyjapeiinn Hjörleifur verður örugglega í dalnum ásamt nokkrum öðrum úr áhöfninni. Aðrir frímenn verða svo væntanlega hist og her í perlum landsins okkar á þessari mestu ferðahelgi ársins og vonandi fá allir gott veður.
Sverrir Rúnars sem er á myndinni að neðan er að fara í frí og ætlar að renna fyrir lax í Blöndu og líklega víðar. Og ef ég þekki kauða rétt þá mun hann örugglega láta einhverjar gólfkúlur finna fyrir kylfunni.
Heiddi er líka mikill golfáhugamaður og allir eru þessir golfmenn hér um borð með töluverða forgjöf sem ég ekki-golfáhugamaður kann ekki nánari skil á.

Heiddi bátsmaður hefur það hlutverk meðal annars að vera í pökkuninni á sinni vakt og er þarna að þræða nýja rúllu í aðra bindivélina.
Þetta er aðeins öðruvísi viðskiptafræði sem Kiddi er að ástunda á myndinni að neðan heldur hann stundar í HÍ á veturna, því þarna hefur hann raunveruleg verðmæti á milli handana en ekki bara tölur á blaði.

Árni er alltaf vel til hafður en óneitanlega sérlega flottur, eins og þið sjáið, eftir að hann komst í hátískuvöruverslun Guðmundar VE.
Jæja dúllurnar mínar. Þetta verður þá ekki lengra í þetta sinn.
Heilsa af hafinu frá GUÐMUNDI hinum GÓÐA.





Mánudagur 26. júlí 2010 kl: 12:01
Jæja Sverrir minn það verður greinilega nóg að gera í fríinu þínu;) hlakka til að fá þig heim góða heimferð flotta áhöfn