Website counter
júlí 29

Sæl veri þið

Löndunin á Þórhöfn gékk vel og var spottunum sleppt fljótlega eftir að síðasti löndunarmaðurinn fór frá borði. Við eru nú á fyrsta hali og erum að reyna við blessuðu síldina.

Það voru nokkuð mikil mannaskipti í þessari inniveru og Bóndinn var einn af þeim sem mættu á svæðið. Hann er að koma frá Tenerife þar sem hann átti góðar stundir með konu sinni. Í það minnsta  brosir hann beitt sem reyndar er svo sem ekkert óvejulegt hjá Bóndanum. Merkilegur er þó munurinn á húðlit okkar, míns og Gunna. Gunni að koma úr sólinni en ég meira og minna verið inni í skrokk Guðmundar hins Góða síðustu tvo túra.

Þessar fagur rauðu húfur gera óneitanlega flotta menn flottari. Eða hvað finnst ykkur?

Þessir tveir á myndinni að neðan eru þeir Birkir og Grétar og eru hjá okkur í afleysingum. Þeir eru eyjapeyjar algjörlega inn að beini báðir tveir og hugur þeirra leitar örugglega í dalinn um helgina. En annað er líka öruggt að þeir þurfa ekki að kljást við þynnku eða móral, því nú skal bera björg í bú.

Þessir Eyjapeyjar eru vaskir og leggjast frekar á árina heldur en að sletta úr klaufunum

Haukur skellti sér heim til Akureyrar í inniverunni til að eiga góða stund í faðmi fjölskyldunnar og er mættur galvaskur aftur.

Haukur vinnslustjóri tekur þátt í trolldæminu þegar ekkert er um að vera niðri í vinnslu.

Stjáni er mikill fluguveiðimaður en hann og Róbert skelltu sér í vöðlur og vesti og reyndu fyrir sér í á, rétt við Þórshöfn (man ekki hvað hún heitir og skammast mín) og náðu þar í fimm þræl vænar bleikjur.

Það er gott að hafa Stjána bláa um borð því hann er alltaf léttur í lund, en að sama skapi er hans örugglega sárt saknað heima fyrir.

Iain var líka að koma um borð og er búinn að standa í stórræðum heima á Skotlandi. Hann var að steipa vegg í kring um lóðina sína og mokaði upp einhverjum lifandis ósköpum af jarðvegi úr lóðinni, að ég held tugum tonna. Allt með skóflu og hjólbörum.

Það hefur áður komið fram í færslum að þessir tveir eru miklir mátar og því eðlilega nokkuð auðvelt að ná þeim saman á mynd. En takið eftir þessu gríðarlega glæsilega skeggi sem Árni er farinn að skarta.,

Allt tekur enda um síðir og það á líka við um þessa færslu sem endar hér…..

Jaxlakveðja frá Guðmundi.

Ein ummæli um “Komnir af stað á ný”

  1. Kiddisig segir:

    Er ekki hægt að fá mynd af Grétari Grandara í ÞJÓÐHÁTÍÐAR volæðinu hans??
    Bestu kveðjur úr dalnum
    Kiddi

Skrifaðu ummæli

Spam protection by WP Captcha-Free