Website counter
ág. 22

Jæja elskurnar, þá erum við loksins á heimleið með fullt skip af Makríl og Síld, áætlaður komutími til Þórshafnar er laust fyrir hádegi, og er stefnt á að hefjast handa við löndun á frostnum afurðum og í vinnslu um leið og skipið hefur verið bundið. Einhver mannaskipti verða núna og er mönnum bent á að skoða ferðaplanið hér að ofan. Ég lofaði myndum og ekki get ég svikið það. Hér koma nokkrar skemmtilegar myndir úr túrnum.

Birkir og Rabbi stilltu sér upp í flott pós

Dekkliðið á bátsmannsvaktini að gera sig klára til að tengjast við Álsey.

Nú hugsa sjálfsagt margir…þvílíkt ego í einum manni að setja mynd af sjálfum sér á síðuna….en ég bara varð..

Þetta hafa nú allir séð áður, en þetta tókst flott hjá stráknum í þetta skiptið og hann var okkur til fyrirmyndar

Þetta er Haukur Vinnslustjóri….veit ekki með ykkur, en mér finnst hann alveg ljóma á þessari mynd.

Þarna er Álsey að færa sig nær okkur fyrir hífingu

Nóg um myndir í bili, ég ætla að hafa nýjan lið á síðunni sem heitir “Hin hliðin” og eftir slembiúrtaki úr þjóðskrá, varð fyrir valinu sá er kallar sig iðulega Vitleysinginn, en við skulum skoða hann aðeins nánar:

Hvað heitirðu?: Kristján Gylfason

Staða um borð?:Háseti

Hvenær ertu fæddur?:31. óktober, 1970

Hvernig bifreið áttu?:Subaru Legacy 1997

Hjúskaparstaða?: Giftur

Hver er þinn uppáhalds matur?:Færeyskur matur

Á hvaða skipum hefurðu verið?: Víði EA, Baldvin Þorsteinsson EA

Hvað ertu búinn að vera lengi á sjó?: 14 ár

Hvað gerurðu helst í fríunum?:Stunda veiði og golf,

Hvernig tónlist hlustar þú á?: óðinn Valdimarsson

Hver eru áhugamál þín?: Stangveiði, skotveiði, golf og berjatínsla

Hvað er eftir minnilegasta atvikið á sjó?:Þegar ég fór í krummafót.

Hvert er lífsmóttóið: Skil ekki þessa spurningu

Með hverjum heldurðu í ensku?:Liverpool

Með hverjum heldurðu í Íslensku?:Þór, Akureyri.

En við höfum þetta ekki lengra núna, kem með ferskt blogg flótlega aftur, þangað til njótið lífsin í botn,

Kv kórstrákarnir á Guðmundi VE

Höfundur: eddigr

ág. 20

Góðann daginn,

Nú erum við farnir að sjá svona nokkurn veginn fyrir endan á þessum túr, hann hefur aðeins dregist á langin sökum aflabrests um tíma, og svo var veðrið okkur ekki hliðhollt um hríð, en öll él styttir upp um síðir og eftir að síðasta færsla var skrifuð hefur staðan aðeins breyst til góðs, veðrið hefur lagast og var trollinu kastað síðustu nótt með ágætis árangri, er nú vinnslan farin að rúlla á nýjan leik og brúnin farin að lyftast á mönnum, ég tala nú ekki um þá sem eru að fara í frí, þeir brosa breytt og syngja dátt “Ég fer í fríið” sem Þorgeir Ástvaldsson gerði ódauðlegt á sínum tíma. Heyrst hefur á göngum skipsins að jafnvel eigi að færa Þórshafnarbúum hráefni til landvinnslu.

ég hef þetta ekki lengra núna en ég lofa myndum í næstu færslu sem kemur von bráðar

þangað til næst, ástarkveðjur heim

Strákarnir á Guðmundi Ve-29

Höfundur: eddigr

ág. 19

Góðann og blessaðan daginn,

Síðan síðasta færsla var skrifuð hefur talsvert bæst í frystinn hjá okkur, en eitthvað virðist síldin vera að fela sig núna, eftir að veðurguðirnir fóru að gera vart við sig (ekki þó Ingó og veðurguðirnir) og erum við því að leita eins og er og vonandi fer nú eitthvað að skýrast í þeim málum svo að við getum farið að fylla um í það litla lestarrými sem eftir er, það er nefnilega sorglega lítið sem okkur vantar til að fylla í kútinn okkar. Eitthvað höfum við nú verið að dunda okkur við þrif og ýmiskonar snurfus í aflaleysinu, við leggjum nefnilega talsvert uppúr því að hafa skipið okkar snyrtilegt og fínt.

Annars er ég að blogga mitt fyrsta blogg hérna þar sem Vefstjóri bauð mér það ábyrgðarmikla hlutverk, og ætla ég að reyna að vera frekar duglegur að taka myndir og setja þær inn funheitar og nýkomnar úr framköllun, ég ætla ekki að setja neinar myndir inn í þetta skiptið þar sem þetta er svona mitt “jómfrúar blogg” en þær koma seinna og þá í miklum mæli.

en ég hef þetta ekki lengra núna, og verð með ferskar fréttir fljótlega,

Kærar kveðjur heim, Strákarnir á Guðmundi VE

Höfundur: eddigr

ág. 15

Jú gott fólk, það er hálfnað að frysta í dollurnar eða 21 þús. kassar. Þetta hefur gengið vel fram að þessu en nú er útlitið ekki nógu gott á síldarmiðunum og allt eins víst að seinni helmingurinn verði ekki eins ljúfur og sá fyrri. Við byrjuðum að fiska einir og gekk það bara vonum framar en núna erum við farnir að partolla með Júpiter og Álsey. En þó þetta sé fín og afkastamikil veiðiaðferð þá býr hún ekki til fisk og erum við því sem stendur að leita og reynum að vera brattir.

En snúum okkur þá að myndunum.

Þorsteinn

Þessi er grunaður um að hafa klárað alla síldina, í það minnsta hefur verið verulega rólegt á miðunum síðan hann fór. Hérna er Þorsteinn kominn með rúmlega 1700 tonn í mallakútinn sinn.

Júpíter

Við tókum 2 hol með Júpíter en þeir tjónuðu hjá sér trollið og þurftu frá að hverfa

Álsey

Álsey kom svo og tók við keflinu af Júpíter og erum við búnir að taka tvö hol með þeim en árangurinn var ekki sem skildi og erum við því að leita núna

Montinn á byssunni

Vilberg fékk loksins að skjóta úr línubyssunni. Ekki vantaði yfirlýsingarnar en þetta fór eins og við var að búast....hann drullaði upp á bak og dreif ekki yfir

isss hvað þetta var lélegt

"Nei djöööö.......strákar, en tæknilega fór þetta yfir....er það ekki?"

Höfundur: Vefstjóri